Annar mannanna sem fóru í Svarfaðardalsá: „Sjálfsagt ósáttastur við sig strákgreyið“ Birgir Olgeirsson skrifar 7. ágúst 2016 17:56 „
Ég var að heyra í öðrum aðilum á áðan og hann er sjálfsagt ósáttastur við sig strákgreyið,“ sagði Felix Jósafatsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Dalvík, um annan mannanna sem léku sér að því að fara í Svarfaðardalsá í nótt. Lögreglan og björgunarsveitir voru með mikinn viðbúnað vegna málsins eftir að tilkynning hafði borist frá vegfarenda sem kvaðst hafa orðið vitni að því að tveimur mönnum hefði verið kastað út úr bíl á brúnni yfir ána, sunnan Dalvíkur. Annar mannanna átti að hafa kastast á handrið á brúnni og yfir það og hugsanlega í ána. Á fimmta tug björgunarsveitarmanna tóku þátt í aðgerðinni vegna útkallsins ásamt lögreglu og þá tók Landhelgisgæslan einnig þátt. Á fjórða tímanum í nótt hafði lögreglan upp á mönnunum tveimur og kom þá fram í máli þeirra að þeir hefðu gert sér að leik að fara í ána. Þeir komu sér sjálfir á þurrt og var síðan ekið heim. Felix Jósafatsson sagði í fréttum Bylgjunnar hafa heyrt í öðrum þeirra fyrr í dag og að hann sæi eftir öllu saman. „Hann ætlar nú að reyna að bæta fyrir þetta,“ sagði Felix en mikill kostnaður hlýst af því að ræsa svo marga út vegna björgunaraðgerðar. Tilkynningin barst lögreglu um það leyti sem bryggjusöngnum og flugeldasýningunni var að ljúka á Fiskideginum mikla á Dalvík og fjölmenni í bænum. Reyndist erfitt fyrir lögreglu og björgunarsveitarmenn að komast í gegnum bæinn vegna þess hve margir voru þar saman komnir. „Þannig að þetta skapaði líka hættu þar,“ sagði Felix. Þá voru mennirnir heppnir að sleppa vel að sögn Felix. „Að henda sér fram af hárri brú niður í vatn sem ekki er vitað hvað er djúpt og hvort það er grjót eða sandur, það gleymist að hugsa um það. Þetta er það hátt og þeir heppnir að lenda í það djúpu vatni að þeir meiddu sig ekki.“ Búast má við að mennirnir tveir verði kallaðir til skýrslutöku hjá lögreglu vegna málsins.
Tengdar fréttir Tveggja manna leitað sem mögulega féllu í Svarfaðardalsá Björgunarsveitar- og lögreglumenn á Dalvík voru kallaðir út í kvöld eftir að vegfarandi lét vita af því að hann hefði séð tveimur mönnum kastað úr bíl á brúnni yfir Svarfaðardalsá. 7. ágúst 2016 03:05 Léku sér að því að fara í ána Fjölmennt lið lögreglu og björgunarsveitarmanna var kallað út vegna tveggja manna er kastað höfðu sér út í Svarfaðardalsá við Dalvík í nótt. 7. ágúst 2016 09:20 Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fleiri fréttir Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Sjá meira
Tveggja manna leitað sem mögulega féllu í Svarfaðardalsá Björgunarsveitar- og lögreglumenn á Dalvík voru kallaðir út í kvöld eftir að vegfarandi lét vita af því að hann hefði séð tveimur mönnum kastað úr bíl á brúnni yfir Svarfaðardalsá. 7. ágúst 2016 03:05
Léku sér að því að fara í ána Fjölmennt lið lögreglu og björgunarsveitarmanna var kallað út vegna tveggja manna er kastað höfðu sér út í Svarfaðardalsá við Dalvík í nótt. 7. ágúst 2016 09:20