Bravo orðinn leikmaður Man City Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. ágúst 2016 14:19 Bravo er fyrirliði síleska landsliðsins. vísir/getty
Enska úrvalsdeildarliðið Manchester City hefur staðfest kaupin á síleska landsliðsmarkverðinum Claudio Bravo frá Barcelona. Hinn 33 ára gamli Bravo skrifaði undir fjögurra ára samning við City. Bravo lék í áratug á Spáni, fyrstu átta árin með Real Sociedad og síðustu tvö ár með Barcelona þar sem hann vann allt sem hægt var að vinna. Bravo, sem er leikjahæsti leikmaður í sögu síleska landsliðsins, varð Suður-Ameríkumeistari 2015 og 2016. Hann var valinn besti markvörður mótsins í bæði skiptin. „Ég er mjög stoltur að vera genginn í raðir Manchester City. Það er ekki auðvelt að yfirgefa félag eins og Barcelona þar sem ég átti tvö stórkostleg ár en tækifærið að starfa með Pep Guardiola var of gott til að sleppa því,“ segir Bravo á heimasíðu City. Þar kveðst Guardiola ánægður með nýja markvörðinn. „Claudio er stórkostlegur markvörður og frábær viðbót við okkar hóp. Hann býr yfir reynslu og leiðtogahæfileikum og er á toppnum á sínum ferli. Ég hef hrifist af honum í mörg ár og er mjög ánægður að hann sé orðinn leikmaður City.“ Bravo gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir City þegar liðið mætir West Ham United á sunnudaginn.It's that time again!Let's all #WelcomeClaudio to Manchester City!https://t.co/0u4QqLUsYT pic.twitter.com/oDlo6UwC6V— Manchester City (@ManCity) August 25, 2016
Enski boltinn Mest lesið Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Fótbolti Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Íslenski boltinn Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður Íslenski boltinn Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Fótbolti Urðu að sætta sig silfrið þrátt fyrir magnaða endurkomu Handbolti Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór Fótbolti Mike Tyson frestar bardaganum á móti Jake Paul Sport Karabatic skaut niður markvörðinn í síðasta skoti ferilsins Handbolti McIlroy fékk löggu til að afhenda konu sinni skilnaðarpappírana Golf Fleiri fréttir Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Ekkert verður af kaupunum á Everton Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Samkeppnin eykst hjá Hákoni um markmannstöðu Brentford Einn af hverjum fimm atvinnumönnum notar nikótínpúða Ten Hag gæti þurft að bíða lengi eftir ákvörðun um framtíð sína Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Ten Hag skýtur á Slot: „Fólk hefur látið of mikið með Feyenoord“ Rashford kveður samfélagsmiðla í bili og sendir smá pillu Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Sjá meira