Neitað um aðgang að bréfi um meint einelti sonar þeirra Jóhann Óli Eiðsson skrifar 10. ágúst 2016 21:49 Myndin er úr safni. Vísir/Getty
Foreldrar barns, sem sakað var um einelti af samnemendum sínum, fá ekki aðgang að nafnlausu bréfi foreldra meintra þolenda. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál en með því staðfesti nefndin niðurstöðu grunnskólans sem um ræðir. Í umræddu bréfi voru frásagnir fjögurra barna af samskiptum við son málshefjanda. Foreldrar hins meinta geranda kröfðust þess að fá aðgang að bréfinu á þeim grundvelli að þar væri að finna upplýsingar sem vörðuðu hann. Þau höfðu verið upplýst um bréfið, sem var ritað í nóvember 2014, en ekki fengið aðgang að því. Í umsögn skólans kemur fram að miklir erfiðleikar hafi verið í bekknum sem um ræðir. Bréfið er nafnlaust og óundirritað. Í kjölfar þess að foreldrar hins meinta geranda óskuðu eftir aðgangi að því gengust tilteknir foreldrar við því að hafa ritað bréfið. Þá kom fram afstaða þeirra þess efnis að veita ekki aðgang að bréfinu. Í bréfinu eru frásagnir fjögurra barna af samskiptum þeirra við hinn meinta geranda auk lýsinga á upplifun þeirra og ótta gagnvart honum. „Þrátt fyrir að um sé að ræða nafnlaust óundirritað bréf liggur fyrir hvaða foreldrar rituðu það. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál telur því að auðvelt sé að para saman lýsingu hvers barns fyrir sig og bréfritara og þar með komast að því hvaða barn á í hlut hverju sinni,“ segir meðal annars í niðurstöðunni. Það var því niðurstaða nefndarinnar að bréfið innihéldi nógu ríka einstaklingshagsmuni barna til að heimilt sé að takmarka aðgang foreldra hins meinta geranda að bréfinu. Því var þeim synjað um aðgang að því.
Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fleiri fréttir Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Sjá meira