Hvíldu markahæsta leikmenn keppninnar en unnu samt leikinn um 5. sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2016 16:40 Rúmenska landsliðið stóð sig vel á EM í Svíþjóð. Vísir/AFP
Rúmenía tryggði sér fimmta sætið á Evrópumóti kvenna í handbolta eftir dramatískar lokamínútur. Rúmenía vann þá 23-22 sigur á Þýskalandi í leiknum um fimmta sætið á EM í Svíþjóð en seinna í kvöld fara síðan fram undanúrslitaleikir keppninnar þar sem norska landsliðið mætir meðal annars Frökkum. Þýsku stelpurnar voru marki yfir í leiknum og með boltann þegar aðeins 90 sekúndur voru eftir af leiknum. Rúmenska liðið gafst ekki upp og skoraði tvö síðustu mörkin þar á meðal sigurmarkið úr hraðaupphlaupi rétt fyrir leikslok eftir að hafa stolið sendingu frá leikmanni þýska liðsins. Cristina Zamfir skoraði sigurmarkið sekúndu fyrir leikslok eftir að hafa stolið boltanum. Cristina Zamfir var markahæst í rúmenska liðinu með sex mörk úr níu skotum. Rúmenska liðið var ekki með Cristina Neagu í þessum leik en hún er markahæsti leikmaður keppninnar. Rúmenski þjálfarinn ákvað að hvíla tvo reyndustu leikmenn liðsins og taka inn í staðinn ungar og stórefnilegar stelpur. Markvörðurinn Paula Ungureanu hvíldi líka. Markvörðurinn Yuliya Dumanska kom inn í hópinn fyrir þennan leik og varði meðal annars bæði vítin sem hún reyndi við. Denisa Dedu varði líka vel í rúmenska markinu. Cristina Neagu var með ellefu marka forskot á hina dönsku Stine Jörgensen á listanum yfir markahæstu leikmenn keppninnar og er því ekki örugg með markakóngstitilinn því á tvo leiki eftir. Cristina Neagu skoraði 46 mörk í 6 leikjum eða 7,7 mörk í leik og er einn allra besti leikmaður heims. Það var því athyglisvert að þær rúmensku gátu unnið án hennar.
Handbolti Mest lesið „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn