Fá ekki afhent gögn er snúa að tálbeituaðgerðinni sem miður fór Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. janúar 2016 21:00 Mirjam Foekja van Twuijver hlaut ellefu ára dóm. Verði dómurinn staðfestur í Hæstarétti verður um að ræða þyngsta fíkniefnadóm sem fallið hefur hér á landi. Vísir
Verjendur burðardýrs frá Hollandi og íslensks sendisveins halda til streitu kröfu sinni um að málflutningi fyrir Hæstarétti verði frestað. Er krafan á þeim grundvelli að héraðssaksóknari hafi nú til rannsóknar meinta refsiverða háttsemi lögreglufulltrúa sem kom að stjórnun aðgerðarinnar í málinu. Ætla þeir að ítreka rökstuðning sinn við Hæstarétt í dag. Mirjam Foekja van Twuijver hlaut ellefu ára dóm og Atli Freyr Fjölnisson fimm ára dóm í héraði fyrir aðild sína að fíkniefnamálinu umfangsmikla sem kennt hefur verið við tálbeituaðgerð við Hótel Frón. Refsiramminn í fíkniefnamálum er tólf ár og er umdeilt að burðardýr, sem veitti lögreglu umtalsverða aðstoð við tálbeituaðgerðina, fái svo þungan dóm. Málflutningur er fyrirhugaður í Hæstarétti þann 27. janúar en Björgvin Jónsson, verjandi konunnar, og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi Atla Freys, hafa kallað eftir frekari gögnum í málinu er snúa að tálbeituaðgerðinni. Athygli vekur að í gögnum málsins, sem verjendur fengu frá ákæruvaldinu áður en málið var tekið til meðferðar í héraði í haust, kemur ekkert fram um að lögreglufulltrúinn, sem nú sætir rannsókn, hafi stýrt eða komið að aðgerðinni. Það gerði hann þó samkvæmt heimildum Vísis. Dómarar í Hæstarétti ákveða hvort gögnin fáist afhent og sömuleiðis hvort málfutningi verði frestað eður ei.Vísir/GVA Ákæruvaldið á móti birtingu gagnanna Hulda María Stefánsdóttir, fulltrúi ákæruvaldsins, vísar til laga um meðferð sakamála, þriðju málsgreinar í 110. grein og telur nægjanlegra gagna hafa verið aflað. Greinin er svo hljóðandi: Ákærandi aflar sönnunargagna en ákærði getur einnig aflað sönnunargagna telji hann ástæðu til þess. -Eftir því sem dómari telur nauðsynlegt til að upplýsa mál eða skýra það er honum rétt að beina því til ákæranda að afla gagna um tiltekin atriði þess. -Ef dómari telur bersýnilegt að atriði, sem aðili vill sanna, skipti ekki máli eða að gagn sé tilgangslaust til sönnunar getur hann meinað aðila um sönnunarfærslu. Af greininni má ráða að það er á valdi dómara að taka ákvörðun hvort veita eigi aðgang að gögnum eða ekki. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson er verjandi Atla Freys, sendisveinsins sem veitti gerviefnum viðtöku.Vísir/GVA „Hvað hefur ákæruvaldið að fela?“ Í gögnum málsins má finna skýrslu undirritaða af Þorbirni Val Jóhannssyni rannsóknarlögreglumanni og einum þeirra sem stýrði aðgerðum á vettvangi. Hann er þó lægra settur en lögreglufulltrúi sá sem til rannsóknar er hjá héraðssaksóknara. Þá komu Aldís Hilmarsdóttir, yfirmaður fíkniefnadeildar, og Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn einnig að aðgerðinni sem var á þeirra ábyrgð. Í skýrslunni sem Þorbjörn skrifar kemur ekkert fram um hvers vegna ákvörðun var tekin að handtaka Atla Frey en ekki fylgja honum eftir eins og lagt hafði verið upp með. Ljóst er að ítarlegri skýrslu eða skýrslur er að finna hjá lögreglu um svo umfangsmikla aðgerð sem ætti að varpa ljósi á hvers vegna sú ákvörðun var tekin að handtaka manninn. Vilhjálmur segist hvergi nærri hættur í leit sinni að gögnum sem varpi frekara ljósi á málið. Hagsmunir ákærðu séu svo sannarlega í húfi enda ómögulegt að segja til um hvaða áhrif það hefði haft á dóminn hefði handtakan ótímabæra ekki farið fram og stærri aðilar náðst. „Hvað hefur ákæruvaldið að fela?“ spyr Vilhjálmur. Hæstiréttur hefur óskað frekari rökstuðnings frá verjendum fyrir því að málinu verði frestað. Vilhjálmur sagði við Vísi fyrr í dag frekari rökstuðningur myndi berast Hæstarétti..
Leki og spilling í lögreglu Tengdar fréttir Handtakan furðulega: Hollenska móðirin og sendisveinninn mæta örlögum sínum Framundan er málsmeðferð í Hæstarétti í máli ríkissaksóknara á hendur hollenskri móður og íslenskum karlmanni í umfangsmiklu fíkniefnamáli sem kennt hefur verið tálbeituaðgerð við Hótel Frón sem misfórst hrapalega. 11. janúar 2016 09:00 Formleg rannsókn hafin á lögreglufulltrúanum sem samstarfsmenn efast um Málið barst héraðssaksóknara í gær en ásakanir hafa verið háværar í lengri tíma. 12. janúar 2016 13:40 Krefjast þess að máli Mirjam verði frestað Verjendur í umfangsmiklu fíkniefnamáli vilja fæa frestað málsmeðferð fyrir Hæstarétti í ljósi þess að hafin er sakamálarannsókn á lögreglufulltrúa sem stýrði tálbeituaðgerð sem miður fór í málinu. 12. janúar 2016 16:27 Ríkislögreglustjóri segir yfirmenn verða að svara hvernig tekið var á ásökununum Friðrik Smári Björgvinsson og Jón H.B. Snorrason hafa ekki viljað upplýsa hvað gert var við greinargerð Karls Steinars Valssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglu. 14. janúar 2016 12:00 Mest lesið „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Erlent Vaktin: Viðreisn velur oddvita Innlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Viðreisn velur oddvita „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Sjá meira
Handtakan furðulega: Hollenska móðirin og sendisveinninn mæta örlögum sínum Framundan er málsmeðferð í Hæstarétti í máli ríkissaksóknara á hendur hollenskri móður og íslenskum karlmanni í umfangsmiklu fíkniefnamáli sem kennt hefur verið tálbeituaðgerð við Hótel Frón sem misfórst hrapalega. 11. janúar 2016 09:00
Formleg rannsókn hafin á lögreglufulltrúanum sem samstarfsmenn efast um Málið barst héraðssaksóknara í gær en ásakanir hafa verið háværar í lengri tíma. 12. janúar 2016 13:40
Krefjast þess að máli Mirjam verði frestað Verjendur í umfangsmiklu fíkniefnamáli vilja fæa frestað málsmeðferð fyrir Hæstarétti í ljósi þess að hafin er sakamálarannsókn á lögreglufulltrúa sem stýrði tálbeituaðgerð sem miður fór í málinu. 12. janúar 2016 16:27
Ríkislögreglustjóri segir yfirmenn verða að svara hvernig tekið var á ásökununum Friðrik Smári Björgvinsson og Jón H.B. Snorrason hafa ekki viljað upplýsa hvað gert var við greinargerð Karls Steinars Valssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglu. 14. janúar 2016 12:00