Hinn frjálsi förusveinn er í forgrunni hátíðarinnar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 16. júní 2016 11:00 "Halla Oddný er bæði eiginkona mín og aðstoðarkona við undirbúning hátíðarinnar,“ segir Víkingur Heiðar. Hér stilla þau hjónakornin sér upp í gluggum Hörpu. Vísir/Anton Brink
Ég stofnaði hátíðina Reykjavík Midsummer Music árið 2012, svo hún er að fara fram í fimmta sinn – ótrúlegt hvað tíminn líður,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari brosandi. „Nú er fólk líka farið að reikna með hátíðinni og spyrja um hana, svo hún er búin að festa sig í sessi. Hugmyndin er rosalega einföld. Hún er sú að fá íslenska og erlenda topp listamenn og leiða þá saman í einu besta tónlistarhúsi Evrópu á bjartasta árstíma. Svo er ég alltaf að leika mér með þema, í ár er hugmyndin „wanderer“ eða ferðalangur og allt hverfist um hann. Við förum út í náttúruna, út í heim og út í geim.“ Sumir flytjendurnir sem komnir eru til landsins eiga líka óvenjulegar ferðasögur úr fortíðinni eins og Víkingur Heiðar lýsir. „Rússneski fiðluleikarinn Viktoria Mullova flúði Sovétríkin 1983, skömmu eftir að hafa unnið stærstu fiðlukeppni heims. Hún skildi Stradivari-fiðlu eftir á hótelherbergi í Finnlandi, flúði til Svíþjóðar, kallaði sig Miss Smith og fékk hæli í Bandaríkjunum þar sem henni var í raun boðið beint í partí í Hvíta húsið til Ronalds Reagan. Svo varð hún bara einn frægasti tónlistarmaður heims og tákn fyrir sigur vestursins gegn austrinu. Mullova kom til Íslands fyrir 30 árum og það er gaman að geta sýnt henni Hörpu og hvernig allt hefur breyst hér. Hún kemur fram á hátíðartónleikum í Eldborgarsalnum 17. júní, sem bera yfirskriftina Söngvar förusveins, ásamt fleiri snillingum.“Þeir voru að æfa, meistararnir, Víkingur Heiðar og Kristinn Sigmunds.Einn þeirra sem syngja í Eldborginni að kvöldi þjóðhátíðardagsins er hinn góðkunni Kristinn Sigmundsson sem flytur meðal annars verk eftir Schubert og Mahler. „Kristinn hefur aldrei komið fram á hátíðinni minni áður þó það sé kært með okkur bæði í músíkinni og persónulega,“ segir Víkingur Heiðar glaðlega. Vissulega er mikil vinna að koma svona hátíð á koppinn, það viðurkennir tónlistarmaðurinn. „Þetta er rosalegt batterí, miðað við hvað undirbúningsteymið er fámennt, en það er ekkert einsdæmi á Íslandi. Ég er með aðra hátíð úti í Svíþjóð og kringum hana er her manns en hér eru örfáar manneskjur að gera allt af lífi og sál, þar á meðal er konan mín, Halla Oddný Magnúsdóttir. Ég er sjálfur að stafla stólum milli þess sem ég æfi og reyni að gæta þess að allt gangi upp. Venjulega er ég auðvitað hinum megin við borðið, listamaður sem mætir þar sem búið er að bóka allt og þarf bara að hugsa um músíkina,“ segir hann og bætir við: „En það er alveg element í mér sem nýtur þessa brjálæðis þó ég gæti ekki hugsað mér að standa í því nema einu sinni á ári.“ Ýmsir þeirra sem koma að utan á hátíðina eru vinir Víkings Heiðars sem hann hefur unnið með úti. „Það eru allir svo uppnumdir yfir Íslandi og Hörpu og öllu hér svo það gefur mér líka orku. Ég er ekki að ýkja þegar ég segi að ég sef svona fjóra og hálfan tíma á nóttu um þessar mundir og þarf alltaf minni og minni svefn, músíkin er svo geggjuð og spenningur listafólksins eykst eftir því sem á líður vikuna. Birtan er líka svo mögnuð. Ég held hátíðina á þessum árstíma til að tryggja að ég sé alltaf á Íslandi um sumarsólstöður og í Hörpu með músíköntunum – það verður ekki betra.“ Dagskrá hátíðarinnar má skoða á rmm.is.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 16. júní 2016.
Menning Mest lesið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Lífið Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni Lífið „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling Bíó og sjónvarp Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Fleiri fréttir Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira