Sýknaður af ákæru um tilraun til nauðgunar JÓHANN ÓLI EIÐSSON skrifar 30. júní 2016 22:40 Atburðurinn átti sér stað á tjaldsvæði um verslunarmannahelgina 2014. Tjaldsvæðið sem sést á myndinni tengist fréttinni ekki. vísir/heiða
Piltur á tvítugsaldri var í Héraðsdómi Suðurlands, síðastliðinn föstudag, sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni og tilraun til nauðgunar. Ekki var heldur fallist á varakröfu ákæruvaldsins en hún fólst í blygðunarsemisbroti og líkamsárás. Dómurinn var fjölskipaður. Atburður, sá er var til umfjöllunar, átti sér stað um verslunarmannahelgina árið 2014. Á þeim tíma var hinn ákærði sautján ára en stúlkan, sem kærði hann, sextán ára. Voru þau stödd í útilegu á Suðurlandi ásamt vinum sínum. Einn þeirra var kærasti stúlkunnar en hann hafði sofnað áfengissvefni þegar umrætt atvik gerðist. Óumdeilt var að pilturinn og stúlkan, sem þekktust ekki fyrir umrædda nótt, fóru frá vinahópnum og gengu í áttina að salerni tjaldsvæðisins. Hins vegar greindi þau á um hvað gerðist eftir það.Engin áreiðanleg vitni að atburðunum Stúlkan bar því við að pilturinn hefði áreitt hana með því að kyssa hana nokkrum sinnum á munninn og káfa á rassi hennar innanklæða á leið þeirra að salerninu. Ákæran um kynferðislegu áreitnina stafaði af því. Þá var hann ákærður fyrir tilraun til nauðgunar með því að hafa í kjölfarið ruðst inn á salernið meðan stúlkan var að pissa. Þar átti pilturinn að hafa berað kynfæri sín og reynt að fá hana til að fróa sér með því að færa hönd hennar að kynfærum sínum. Í ákæru segir að stúlkan hafi náð að rífa sig lausa og komist út en hlotið við það marbletti á handlegg. Minni vitna sem voru á staðnum var gloppótt sökum ölvunar. Því stóð framburður brotaþola gegn framburði ákærða. Brotaþoli sagði að á leið á salernið hafi pilturinn ítrekað reynt að leiða og kyssa sig meðan ákærði sagði að aðeins hefði verið um „mömmukossa“ að ræða og það hafi verið eina líkamlega snertingin. Að mati dómsins þótti ekki sannað að ákærði hefði gerst sekur um kynferðislega áreitni þar sem orð stóð gegn orði.Orð gegn orði Aðilar voru einnig ósammála um hvað átti sér stað á salerninu. Ákærði sagði að hann hefði aðeins farið inn til að pissa en taldi „alveg pottþétt“ að stúlkan hefði séð kynfæri hans þegar hann kom þeim fyrir í buxum sínum á ný. Hann hefði aldrei, á nokkru stigi, ætlað neitt kynferðislegt. Stúlkan bar því hins vegar við að hafa farið á klósettið og talið sig hafa læst að sér. Skyndilega hafi ákærði komið inn og reynt að varna henni útgöngu og beðið hana um „að runka sér“. Hún hafi náð að komast út og til vina sinna. Líkt og í fyrri ákæruliðnum þótti dómurunum þremur ekki sannað að pilturinn hafi gerst sekur um háttsemina sem rakin var í ákæru. Orð stæði gegn orði og því þætti sekt ekki sönnuð. Þá var ekki fallist á kynferðisleg áreitni eða blygðunarsemisbrot fælist í því að stúlkan hefði séð kynfæri hans þar sem ekki þótti sannað að kynferðislegur ásetningur lægi þar að baki. Pilturinn var því sýknaður. Allur sakarkostnaður, tæpar tvær milljónir króna, er greiddur úr ríkissjóði. Dóm héraðsdóms má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Þingmaður úðaði eyrnameðali fyrir hunda í kokið á sér Innlent Sérsveit handtók vopnaðan mann Innlent Þorbjörg segir Úlfar hengja bakara fyrir smið Innlent Sósíalistar tortími mögulega sjálfum sér Innlent Kveður Glerártorg eftir sautján ár Innlent Umfangsmestu loftárásir frá upphafi stríðs Erlent Kviknaði í bíl á miðjum vegi Innlent Tóku á móti tveimur börnum á innan við klukkustund Innlent „Það eru alltaf einhverjar árásir í þessari blokk“ Innlent Úr Kvennaskólanum í píparann Innlent Fleiri fréttir „Það eru alltaf einhverjar árásir í þessari blokk“ Stefnt að nýjum og glæsilegum miðbæ í Grundarfirði Kviknaði í bíl á miðjum vegi Framtíð vararíkissaksóknara ræðst á allra næstu dögum Þorbjörg segir Úlfar hengja bakara fyrir smið Sósíalistar tortími mögulega sjálfum sér Dómsmálaráðherra tjáir sig um ummæli Úlfars Úr Kvennaskólanum í píparann Afsögn Úlfars og afstaða Íslands til ástandsins á Gasa Sérsveit handtók vopnaðan mann Tóku á móti tveimur börnum á innan við klukkustund Steinn reistur við með eins konar blöðrum Elsti hestur landsins er 36 vetra með tennur og hófa í fínu standi Vannærð börn svelti eða verði læknanlegum sjúkdómum að bráð „Þú hakkar ekki á tóman maga“ Kveður Glerártorg eftir sautján ár Þingmaður úðaði eyrnameðali fyrir hunda í kokið á sér „Hafa ekki lyft litla fingri í máli Oscars“ Dúxinn fjarri góðu gamni Brottvísun Oscars, skortur á kvenhökkurum og hundgamall hestur Vísar ásökunum um smölun aftur til sendanda Skjálftinn reyndist 5,1 og fannst frá Skaganum að Hellu Gunnar Smári kosinn úr stjórn: Úrsagnir og uppnám á aðalfundi Sósíalistaflokksins Skiptar skoðanir á „forljótum“ varðturnum gegn vasaþjófnaði Stór skjálfti fannst vel á suður- og vesturlandi Dráttarvéladagur er á Blikastöðum í dag Beiðni Oscars hafnað: „Það bíður hans engin birta, það er enginn þarna“ Nýr meirihluti komi ekki til greina Umsókn Oscars um landvistarleyfi hafnað og nýr meirihluti útilokaður Þrjár erlendar stúlkur með hæstu einkunn í FÁ Sjá meira