Berskjaldaðir á sviði í tilefni jólanna Stefán Þór Hjartarson skrifar 22. desember 2016 10:00 Svanurinn ætlar að koma fólkinu í jólagírinn með blöndu af spuna og fyrirfram æfðu efni. Mynd/Guðmundur Einar
Um jólin tíðkast að skella sér á tónleika og nánast hver einasti tónlistarmaður á landinu er með einhvers konar jólatónleika í desember. Nú er hægt að breyta út af vananum og skella sér á jólaspuna – en spunahópurinn Svanurinn heldur jólasýningu í Tjarnarbíói í kvöld. „Við erum spunahópur sem er búinn að sýna spunasýningar með Improv Ísland og sérhæfum okkur í því. En þessi sýning er jólasýning vegna þess að við ætlum að bæta við „elementum“ sem eru ekki spuni – þannig að þetta verður að hluta til spuna-show og að einhverjum hluta til atriði sem við erum búnir að æfa og eru hönnuð til að koma fólki í jólaskapið. Það er rosa langt fyrir utan þægindarammann okkar að plana grínið fyrir fram, þannig að þetta ætti að verða ansi áhugaverð tilraun,“ segir Guðmundur Felixson, einn spunameistaranna úr spunahópnum Svaninum aðspurður hvernig jólaspuni sé öðruvísi en annar spuni.Hvernig ætlið þið út fyrir þægindarammann? „Sumum finnst mjög óþægilegt að hugsa til þess að fara upp á svið og spinna en mér hefur alltaf fundist það mjög þægileg tilhugsun því að ef það er ekkert fyndið þá getur maður alltaf sagt að þetta hafi nú ekkert verið ákveðið fyrir fram og hafi aldrei verið ætlunin að þetta hafi endilega átt að vera fyndið – þannig að við stöndum svolítið berskjaldaðir, er það ekki hinn sanni andi jólanna? En neinei, svo eiga nú þessi atriði sem eru ekki spuni ekki endilega neitt að vera fyndin, heldur falleg og skemmtileg – við ætlum að syngja og bara gera þetta almennilega.“Í fyrra hélt hópurinn sína fyrstu jólasýningu og var hún haldin á Bar 11, þá töluvert minni í sniðum en í ár, en núna fer hún fram í Tjarnarbíói.Munuð þið nota þetta aukna rými í aukaskammt af sprelli? „Já við erum náttúrulega vanir að sýna í pínulitlu rými í Þjóðleikhúskjallaranum. Það er töluvert mikið umstang í kringum þetta núna, við erum búnir að vera að vinna tæknivinnuna núna síðustu daga og það tekur alveg töluvert lengri tíma en maður er vanur vegna þess að það er ekkert hægt að ljósahanna spunasýningu, en við getum ljósahannað aðeins núna. Þannig að já, við erum að nýta okkur alla vega tæknibúnaðinn í Tjarnarbíói til að gera dálítið show.“Má þá búast við miklum tæknibrellum, til dæmis að þið verðið með einhvern hangandi í vír? Það myndi auðvitað gagnast í uppsetningu á til dæmis Jólasögu Dickens eða það gæti mætt engill í Tjarnarbíó. „Nei, reyndar ekki, en við ætluðum að gera það. Við báðum Tjarnarbíó um leyfi fyrir að hengja einn af leikurunum upp í vír, en það reyndist of flókið þannig að í staðinn munum við nota mjög frumstæða tækni sem kallast á mannamáli vinnulyfta – það verður áhugavert að sjá hvað kemur út úr því.“ Ásamt Guðmundi eru í Svaninum sex aðrir liðsmenn – Adolf Smári Unnarsson, Auðunn Lúthersson, Máni Arnarson, Pálmi Freyr Hauksson, Ólafur Ásgeirsson og Guðmundur Einar. Hópurinn var stofnaður fyrir þremur árum en þeir strákarnir koma allir úr hópnum Improv Ísland. Það er hægt að tryggja sér miða á sýninguna á Miði.is.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Fleiri fréttir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Sjá meira