Alda Hrönn: Sárt að hafa alltaf lagt sig alla fram en samt verið leyst frá störfum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 22. desember 2016 10:09 „
Ég hef unnið vinnuna mína að mínu mati mjög samviskusamlega og samkvæmt lögum alla tíð. Það er mjög sárt að hafa lagt sig 150 eða 200 prósent fram í langan tíma og verið síðan settur til hliðar fyrir eitthvað sem maður veit að er ekki satt. Það er mjög erfitt,“ sagði Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í Bítinu í morgun. Héraðssaksóknari hefur látið mál á hendur Öldu Hrönn, vegna LÖKE-málsins svokallaða, niður falla þar sem málið þótti ólíklegt til sakfellingar. Alda Hrönn var kærð af Gunnari Scheving Thorsteinssyni og starfsmanni Nova fyrir brot á friðhelgi einkalífs þeirra, aðdróttanir í þeirra garð og hvernig rannsókn hennar á LÖKE var unnin en málið snerist um að myndir úr lokuðu kerfi lögreglunnar, LÖKE, hefðu farið í dreifingu. Deilt er um hvort Alda Hrönn hafi haft vald til þess að hefja rannsókn á samskiptum lögreglumannsins. Málið var fyrst skráð í apríl 2014 í skráarkerfi lögreglu en rannsókn Öldu Hrannar hófst hins vegar í að öllum líkindum í byrjun september árið áður. Samkvæmt lögreglulögum hafi hún ekki haft vald til að rannsaka störf lögreglumanns. Aðeins ríkissaksóknari hafi haft það vald. Samkvæmt gögnum setts héraðssaksóknara var Öldu Hrönn gefin munnleg heimild til rannsóknar málsins.Ekki útilokað að leggja fram kæru vegna málsinsAlda Hrönn ræddi málið í Bítinu í morgun en hún sagðist ekki geta rætt málið efnislega þar sem hún væri bundin þagnarskyldu. Hún sagði að ekki væri búið að taka ákvörðun um hvenær hún muni snúa aftur til starfa og þá útilokaði hún ekki að leggja sjálf fram kæru vegna málsins. „Það var samkvæmt fyrirmælum ríkissaksóknara sem þessi rannsókn fór fram. Þá var ég í raun bara starfsmaður á plani, eins og menn segja,“ sagði hún, en lögmaður Gunnars Scheving hefur sagt það eftiráskýringu að Alda Hrönn hafi fengið munnlega heimild til rannsóknarinnar og hyggst áfrýja niðurstöðunni til setts ríkissaksóknara. Alda Hrönn sagði að um væri að ræða fordæmalaust mál því þarna sé einstaklingur kærður, ekki embættið í heild. Hún hafi verið í ómögulegri stöðu því málið hafi farið hátt í fjölmiðlum en að sjálf hafi hún ekki mátt verja sig, lögum samkvæmt. Alda segir þetta hafa verið erfiða lífsreynslu. „Þetta er mjög sértæk lífsreynsla að ganga í gegnum og þetta hefur sannarlega áhrif. En allir erfiðleikar eru þannig að þeir þroska mann og gera mann að betri manneskju ef maður nær að spila þannig úr því.“ Aðspurð segir hún að mögulega hefði hún gert ýmislegt öðruvísi, en neitar því þó alfarið að hafa gerst brotleg í starfi. „Að eitthvað hafi gerst sem var saknæm háttsemi er bara fjarstæðukennt, og það hefur í rauninni komið fram. Vegna þess að ríkissaksóknari fyrir löngu síðan gaf það út að það hafi ekkert verið athugavert við málsmeðferðina en samt er haldið áfram.“ Alda Hrönn segir að næstu skref verði að halda gleðileg jól og svo í framhaldinu að skoða málið frekar með lögfræðingi sínum. Hlusta má á viðtalið við Öldu Hrönn í heild í spilaranum hér fyrir ofan.
Tengdar fréttir Alda Hrönn stígur til hliðar vegna ásakana um að hafa misbeitt valdi sínu Lúðvík Bergvinsson héraðsdómslögmaður er settur héraðssaksóknari í máli sem varðar ásakanir á hendur Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, aðllögfræðings lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en hún er sökuð um að hafa misbeitt lögregluvaldi við rannsókn á LÖKE-málinu svokallaða. 17. október 2016 17:20 Sakborningar í LÖKE-málinu hafa kært Öldu Hrönn Tveir sakborningar í Löke-málinu hafa lagt fram kæru á hendur Öldu Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðing lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir meint brot í starfi. 14. apríl 2016 22:13 Steig til hliðar en talar fyrir lögregluna á ráðstefnu í Helsinki Alda steig til hliðar hjá lögreglunni um miðjan október eftir að settur héraðssaksóknari hóf rannsókn á störfum hennar í LÖKE-málinu svonefnda. 15. nóvember 2016 06:00 Kæra á hendur Öldu Hrönn felld niður Ekki eru líkur á sakfellingu að mati Lúðvíks Bergvinssonar, setts héraðssaksóknara í máli aðallögfræðings lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðingu. Verður áfrýjað segir Garðar Steinn Ólafsson, lögmaður kæranda. 21. desember 2016 07:00 Alda Hrönn á fullum launum á meðan rannsókn stendur yfir Laun Öldu Hrannar Jóhannsdóttur aðallögfræðings lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru óskert þrátt fyrir að hún sé nú í ótímabundnu leyfi frá störfum vegna rannsóknar Lúðvíks Bergvinssonar setts héraðssaksóknara á meintum brotum Öldu Hrannar í starfi. 26. október 2016 13:58 Mest lesið Grunaður um að nauðga konu þrisvar sömu nóttina Innlent Aðalmeðferð í Súlunesmálinu frestað Innlent Miðaldaturn í Róm hrundi að hluta Erlent Ekki meiðyrði hjá RÚV að lýsa yfirlýsingum Elds Smára réttilega Innlent Stíga ekki inn í Intra-málið í bili Innlent Íslenskir unglingar veðja næst mest í Evrópu Innlent „Væri fínt ef fullorðna fólkið myndi girða sig og setja reglur fyrir sig sjálft“ Innlent Áfengisneysla „Evrópumeistara í unglingadrykkju“ dregst saman Erlent Segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn Erlent Bandarískir erindrekar hótuðu evrópskum kollegum sínum Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn nálgast Sjálfstæðisflokkinn óðfluga Óvænt stólaskipti skyggðu ekki á Bandaríkjareisuna Ákærður fyrir að birta fjölda nektarmynda af fyrrverandi Ekki meiðyrði hjá RÚV að lýsa yfirlýsingum Elds Smára réttilega Georgíumaður hafi kvænst Letta til þess að fá dvalarleyfi Eldur í bíl á Hellisheiði Líklegra að það gjósi nær áramótum Stíga ekki inn í Intra-málið í bili Vélfag kvartar til ESA og ræður kanónu „Væri fínt ef fullorðna fólkið myndi girða sig og setja reglur fyrir sig sjálft“ Álftin fæli bændur frá kornrækt Íslenskir unglingar veðja næst mest í Evrópu Húsnæðismálin í brennidepli og Alvotech lækkar á mörkuðum Aðalmeðferð í Súlunesmálinu frestað Viðreisn stillir upp á lista í Mosfellsbæ Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra tekur upp nýtt nafn Foreldrar langveikra barna einangruð og endi jafnvel sem öryrkjar Vilja rýmri reglur um veiðar fjögurra fuglategunda Tvö pör handtekin og afskipti höfð af tvímenningum Grunaður um að nauðga konu þrisvar sömu nóttina „Aldrei fyrirgefanlegt þegar það er farið svona með opinbert fé“ Hjóluðu 1300 kílómetra meðfram Dóná með börnum sínum „Gætir verið pirrandi við matarborðið en það er þess virði“ Kynlífsverkafólk í Norræna húsinu og tölvuspilandi eldri borgarar Moskítóflugan lifði kuldakastið af „Þorsti í auglýsingafé er talsverður hjá Ríkisútvarpinu“ Hætta á að ákveðnir staðir þrífist ekki Velunnarar hefja söfnun fyrir ekkju Hjörleifs Þúsundir hafi orðið af milljónum Hundrað þúsund færri kindur í dag en fyrir tíu árum Sjá meira
Alda Hrönn stígur til hliðar vegna ásakana um að hafa misbeitt valdi sínu Lúðvík Bergvinsson héraðsdómslögmaður er settur héraðssaksóknari í máli sem varðar ásakanir á hendur Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, aðllögfræðings lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en hún er sökuð um að hafa misbeitt lögregluvaldi við rannsókn á LÖKE-málinu svokallaða. 17. október 2016 17:20
Sakborningar í LÖKE-málinu hafa kært Öldu Hrönn Tveir sakborningar í Löke-málinu hafa lagt fram kæru á hendur Öldu Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðing lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir meint brot í starfi. 14. apríl 2016 22:13
Steig til hliðar en talar fyrir lögregluna á ráðstefnu í Helsinki Alda steig til hliðar hjá lögreglunni um miðjan október eftir að settur héraðssaksóknari hóf rannsókn á störfum hennar í LÖKE-málinu svonefnda. 15. nóvember 2016 06:00
Kæra á hendur Öldu Hrönn felld niður Ekki eru líkur á sakfellingu að mati Lúðvíks Bergvinssonar, setts héraðssaksóknara í máli aðallögfræðings lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðingu. Verður áfrýjað segir Garðar Steinn Ólafsson, lögmaður kæranda. 21. desember 2016 07:00
Alda Hrönn á fullum launum á meðan rannsókn stendur yfir Laun Öldu Hrannar Jóhannsdóttur aðallögfræðings lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru óskert þrátt fyrir að hún sé nú í ótímabundnu leyfi frá störfum vegna rannsóknar Lúðvíks Bergvinssonar setts héraðssaksóknara á meintum brotum Öldu Hrannar í starfi. 26. október 2016 13:58