Björn Þorláksson sakar DV um atvinnuróg Jakob Bjarnar skrifar 5. febrúar 2016 16:01 Valur hafnar því alfarið að myndin sé fölsuð en Björn ætlar ekki að sitja undir því að vera vændur um bellibrögð og óheiðarleika.
Björn Þorláksson, blaðamaður á Hringbraut, hefur fullan hug á að leita réttar sín í „atvinnurógs í Sandkorni DV í dag sem eyjan.is dreifir af miklu örlæti,“ tilkynnir Björn á Facebook-síðu sinni. Málið er fremur snúið og á sér nokkurn aðdraganda. Björn Ingi Hrafnsson útgefandi og einn eigenda VefPressunnar kærði Sigmund Erni Rúnarsson ritstjóra á Hringbraut til siðanefndar BÍ fyrir birtingu fréttar sem byggði á pistli Ólafs Sívertssen, sem er einn pistlahöfunda Hringbrautar. Meinið er að Ólafur Sívertsen er huldumaður og úrskurði siðanefnd að Hringbraut hafi gerst brotlegt gagnvart siðareglum BÍ og væri brotið alvarlegt. Í Sandkorni DV voru birtar vangaveltur um það hvort huldumaðurinn Ólafur Sívertsen væri Björn Þorláksson, og höfðu menn fyrir því skjáskot af pistli eftir téðan Ólaf þar sem við var mynd af Birni. „Ég var sumsé í blaði dagsins vændur um að vera huldumennið sem skrifað Ólaf Sívertsen á hringbraut.is. Það er einkennileg þráhyggja af því að með fyrri skrifum sem póstað er hér neðar á síðunni, nokkurra vikna gömlum, má ljóst vera að ég hef ekkert með Ólaf Sívertsen að gera - og hef mikla andúð á nafnleysi og því að birta fréttir upp úr nafnleysingjum eins og um alvöru menn sé að ræða,“ segir Björn á Facebooksíðu sinni.Fölsuð mynd til að byggja undir Sandkorn? Á FB-hópnum Fjölmiðlanördar er málið til umræðu og þar kemur fram að Hringbrautarmenn séu búnir að láta kanna það hjá Stefnu, fyrirtækinu sem hýsir vef Hringbrautar, og samkvæmt Sigmundi Erni hefur ekkert komið fram þar sem bendir til þess að myndir hafi brenglast og því má gera því skóna að um sé að ræða falsaða mynd, sem DV styðst við þegar í blaðinu er því velt upp hvort Björn sé Sívertsen. Björn gerir því skóna að myndin sé fölsuð, en því hafnar Valur Grettisson blaðamaður DV, sá sem tók myndina, hann segir þetta skjáskot og það staðfestir Kristjón Kormákur ritstjóri dv.is. „Því miður kann ekki Valur á Photoshop sem er óþolandi. Ég sat við hliðina á Val þegar hann opnaði þetta í símanum og sýndi mér þegar hann var inni á síðunni þinni Sigmundur Ernir þar sem var mynd af Birni Þorlákssyni fyrir ofan nafn Ólafs. - Þessir möguleikar eru fyrir hendi: Fokköp hjá hugbúnaðarhúsinu. Björn skrifar pistilinn. Björn sér um að setja pistilinn inn fyrir huldumanninn, þá miða ég við eigin reynslu að setja pistla inn á Pressuna þar sem ég þarf að gæta þess að skipta um höfundarnafn,“ segir Kristjón á Fjölmiðlanördum og víst er að nú gerast veður válynd.Ætlar ekki að sitja undir þessu Björn segist, í samtali við Vísi vegna málsins, nú hafa gefið ritstjóra DV tíma til að fara yfir málið. „Það virtist koma honum á óvart að myndin væri ef til vill fölsuð - en vitleysan byggir öll á myndinni. Vonandi mun DV bregðast við mistökum sínum líkt og æruverðugir fjölmiðlar gera. Ef ekki verður af leiðréttingu, útskýringu eða afsökunarbeiðni mun ég snúa mér til siðanefndar. Ég sit ekki undir að vera vændur um bellibrögð og óheiðarleika - einkum ekki vegna þess að ég hef áður lagt starf mitt undir með því að gagnrýna þessa Sívertsensýru opinberlega, á eigin vefsvæði á hringbraut.is.“ Svo virðist sem blaðamannastéttin logi meira og minna í innbyrðis átökum en Vísir hefur í vikunni fjallað um deilur milli fréttastofu RÚV og DV.Þetta er ljóti dagurinn - og mun verri en í gær. Lenti ég þó í bílslysi þá! :)En ég hef ákveðið að leita réttar míns ...Posted by Björn Þorláksson on 5. febrúar 2016
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Sjá meira