Ójöfnuðurinn heldur fólki í fátækt Guðsteinn Bjarnason skrifar 19. janúar 2016 06:00 Í skýrslunni segir að alþjóðlegt kerfi skattaundanskota komi í veg fyrir að fátækari lönd fái þau úrræði sem þarf til að takast á við fátækt. Fréttablaðið/EPA
Ríkasta prósent jarðarbúa á jafn mikinn auð eins og öll hin 99 prósentin til samans. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá alþjóðlegu hjálparsamtökunum Oxfam. Samtökin skora á leiðtoga heims að breyta þessu ástandi og draga úr ójöfnuði í staðinn fyrir að láta hann aukast jafnt og þétt. „Þeir sem verja þetta ástand segja að þau sem láta ójöfnuðinn trufla sig stjórnist af pólitík öfundarinnar,“ segir í skýrslunni frá Oxfam. „Þeir benda oft á að fólki sem býr við örbirgð hafi fækkað og það sanni að ójöfnuður sé ekki vandamál. En þarna missa þeir algerlega marks.“ Oxfam-samtökin segjast að sjálfsögðu fagna þeim miklu framförum sem hafið orðið undanfarna áratugi. Á tuttugu árum, frá 1990 til 2010, hafi tekist að fækka um helming þeim jarðarbúum sem búa við algera örbirgð. „En samt er það svo, að hefði ójöfnuður ekki vaxið innan landanna á þessu tímabili, þá hefðu 200 milljónir manna til viðbótar losnað út úr fátækt. Sú tala hefði getað hækkað í 700 milljónir ef fátækir hefðu fengið meira út úr hagvextinum en hinir ríku,“ segja skýrsluhöfundar. Skýrslan er birt í sömu vikunni og hin árlega ráðstefna helstu valdaafla heimsins er haldin í Davos í Sviss. Höfundar skýrslunnar segja að leiðtogar heims eigi að gera það að forgangsverkefni sínu að útrýma skattaskjólum, sem auðkýfingar og stærstu fyrirtæki heims notfæri sér óspart. „Þetta alþjóðlega kerfi skattaundanskota er að sjúga lífið úr velferðarríkjunum í hinum auðuga hluta heimsins,“ segir í skýrslunni. „Það kemur einnig í veg fyrir að fátækari lönd fái þau úrræði sem þarf til að takast á við fátækt.“ Ríkasta fólkið 62 einstaklingar eiga jafn mikið og fátækari helmingur mannkyns, samtals 3,6 milljarðar manns. Árið 2010 voru það 388 manns sem áttu jafn mikið og fátækari helmingur mannkynsins. 230.000 milljarðar króna er auður hinna 62 ríkustu einstaklinga heims metinn á. Auður þeirra hefur vaxið um 44 prósent frá árinu 2010, eða um 70 þúsund milljarða. l 9 af hverjum tíu af 200 fyrirtækjum, sem Oxfam skoðaði, hafa hreiðrað um sig í að minnsta kosti einu skattaskjóli. Þarna á meðal eru flest stærstu fyrirtæki heims.
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira