Svíþjóð: Fær lífstíðardóm fyrir íkveikju og morð Atli Ísleifsson skrifar 19. janúar 2016 14:22 Maðurinn, Zoran Radovanovic, var handtekinn tæpum tveimur vikum eftir að hjón á áttræðisaldri fórust í bruna í Norrahammar þann 28. maí síðastliðinn. Vísir/Getty
Dómstóll í Svíþjóð dæmdi í dag 52 ára mann í lífstíðarfangelsi fyrir að orðið fjórum að bana með því að beita fólkinu ofbeldi og kveikja í heimilum þeirra. Um tvær árásir er að ræða. Maðurinn, Zoran Radovanovic, var handtekinn tæpum tveimur vikum eftir að hjón á áttræðisaldri fórust í bruna í Norrahammar þann 28. maí síðastliðinn. Lögregla komst fljótlega á snoðir um að um íkveikju hafi verið að ræða, þar sem flöskur af kveikivökva fundust á vettvangi. Hægt var að tengja flöskurnar til verslunar í Jönköping og mátti á upptökum úr öryggismyndavélum sjá Radovanovic kaupa þær skömmu fyrir íkveikjuna. Radovanovic var svo handtekinn þann 8. júní, en hann starfaði við eignastýringu og hafði átt í viðskiptum við fólkið. Hann játaði að hafa banað fólkinu í Norrahammar. Í frétt Aftonbladet segir að lögregla hafi skömmu síðar fundið tengingu við aðra sambærilega íkveikju í Hökensås í tveimur mánuðum fyrr, þar sem eldri hjón höfðu einnig látið lífið. Þau höfðu sömuleiðis átt í viðskiptum við Radovanovic, en hann neitaði þó að hafa banað þeim hjónum. Radovanovic var birt ákæra þann 11. nóvember þar sem hann var sakaður um að hafa beitt tvö fórnarlamba sinna ofbeldi með hafnaboltakylfu og hinum með kúbeini. Að því loknu átti hann að hafa kveikt í heimilum fólksins. Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir að hafa féflett alls um 5,7 milljónum sænskra króna, um 87 milljónir króna, frá sautján viðskiptavinum sínum. Segir í dómnum að hann hafi lifað um efni fram sem hafi síðar leitt til þess að hann banaði þessum fjóru viðskiptavinum sínum.
Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira