Aaron Isak er nemi í Tækniskólanum: Lýsir fatastíl sínum sem "rosalega kynreglubrjótandi“ Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 28. desember 2016 15:30 "Ég myndi lýsa honum sem rosalega "kynreglubrjótandi“ eða "androgynous“. Ég leita að fötum sem ná að endurspegla minn persónuleika og er ennþá að þróa útlit mitt.“ mynd/Elín Páls
Aaron Isak Berry stundar nám í fataiðn í Tækniskólanum. Í frístundum semur hann tónlist sem hann setur á YouTube og lýsir fatastíl sínum sem "rosalega kynreglubrjótandi“. Hann vonast til að koma lagi úr eigin smiðju út á nýju ári. „Áhugi minn á fötum og tísku kviknaði þegar ég var í kringum 14 ára. Tónlistin tekur samt við þegar ég klára skólann því þó svo ég hafi áhuga á fataiðn hef ég ákveðið að stefna á tónlistarbransann þar sem Elín Páls, kær vinkona mín, hjálpar mér með tískuákvarðanir í framtíðinni,“ segir Aaron Isak Berry, nemandi í fataiðn við Tækniskólann, en hann hefur verið iðinn við að semja tónlist heima hjá sér og setja á YouTube.Aaron Isak Berry semur RnB tónlist í frístundum og stundar nám í fataiðn í Tækniskólanum. mynd/gva„Ég hef verið að semja RnB/popptónlist síðustu tvö árin heima hjá mér. Ég hef samt verið án lagasmiðs í langan tíma og þess vegna á ég ekkert í flestu undirspili sem ég hef verið að nota. Það þýðir að ég get ekki selt né spilað í útvarpi ennþá, en sá dagur mun koma,“ segir Aaron og vonast til þess að þetta sé upphafið að farsælum tónlistarferli. „Ég vil trúa því. Ég er í sambandi við nokkra lagasmiði og stefni á að koma fyrsta lagi í spilun fyrir lok næsta árs. Það er helsta markmið mitt fyrir næsta ár. Svo er ég búinn að vera að syngja aðeins á almenningsstöðum og held því áfram til þess að þjálfa sviðsframkomuna. Vonum bara það besta,“ segir hann hress. „Ég hlusta rosalega mikið á Mariah Carey, Hailee Steinfeld og Bruno Mars. Ég hlusta mikið á old school RnB og nútíma popptónlist og langar líka til þess að semja þannig tónlist sjálfur.“„Áhugi minn á fötum og tísku kviknaði þegar ég var í kringum 14 ára. Tónlistin tekur samt við þegar ég klára skólann,“ segir Aaron Isak. mynd/úr einkasafniHvernig myndirðu lýsa fatastílnum? „Ég myndi lýsa honum sem rosalega „kynreglubrjótandi“ eða „androgynous“,“ segir Aaron sposkur. „Ég leita að fötum sem ná að endurspegla minn persónuleika og ég er ennþá að þróa útlit mitt. Nýjustu kaupin mín eru reyndar jólapeysa! Ekkert voðalega sérstakt,“ segir Aaron og skellir upp úr. Hver eru bestu fatakaup sem þú hefur gert? „Úff, nú fæ ég valkvíða. Ég vil nefnilega trúa því að 95% alls sem ég hef keypt hafi verið góð ákvörðun.“En þau verstu? „Það mun vera svitaband sem ég keypti hjá storeenvy.com. Það er ekki minn stíll þó það sé mjög sætt.“Hver verða næstu skref í tónlistinni? „Ég stefni bara eins langt og hægt er, að hrista upp í tónlistarbransanum í Bandaríkjunum og mig langar til að vera fyrirmynd hinsegin fólks og tákn sérstöðu.“
Mest lesið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Lífið Fleiri fréttir Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Sjá meira