Innlent

Vilja 435 milljónir í bætur vegna friðunar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Stjórnarráðshúsið þar sem forsætisráðuneytið er til húsa.
Stjórnarráðshúsið þar sem forsætisráðuneytið er til húsa. Fréttablaðið/Vilhelm
Forsætisráðuneytið hafnaði í gær bótakröfu tveggja húseigenda vegna friðunar á tveimur húsum hér í borg. Samanlögð bótakrafa hljóðaði upp á um 435 milljónir króna.

Húsin tvö sem um ræðir eru Klapparstígur 19 og Holtsgata 5 í póstnúmeri 101. Með gildistöku laga um menningarminjar árið 2013 voru bæði húsin friðuð þar sem rúmlega hundrað ár voru frá því þau voru reist. Áður höfðu eigendur þeirra farið fram á að friðunin yrði felld úr gildi en því var hafnað.

Í núgildandi deiliskipulagi Reykjavíkurborgar hefur verið heimilað að rífa bæði húsin en friðun þeirra stendur í vegi fyrir því. Telja eigendur að með því sé gengið á rétt þeirra og því eigi þeir rétt á bótum. Í lögum um menningar­minjar er að finna bótaákvæði en það er skilningur Minjastofnunar að svo að til bóta geti komið verði stofnunin að eiga einhvern þátt í friðuninni. Svo var ekki í þessum tilfellum þar sem húsin hafi friðast sjálfkrafa með gildistöku laganna. Forsætisráðuneytið hefur fallist á túlkun stofnunarinnar og hafnar því bótaskyldu.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×