Kristinn Hrafnsson sakar Séð og heyrt um aumustu lágkúru Jakob Bjarnar skrifar 10. nóvember 2016 11:23 Ástarmálin eru í einni allsherjar flækju hjá ritstjóra Séð og heyrt. Kristinn Hrafnsson er ekki skilinn en sjálf er hún í sambandi við Svein Andra Sveinsson.
Kristinn Hrafnsson hjá Wikileaks hellir sér yfir Ástu Hrafnhildi Garðarsdóttur, ritstjóra Séð og heyrt og sakar um yfirgengilega lágkúru. Hann segir að á síðustu forsíðu hafi blaðið slitið sambandi sínu við Gígju Skúladóttur. En það er algerlega úr lausu lofti gripið. „Ja hérna hér. Það var verið að benda mér á að Séð og Heyrt hefði í dag ákveðið, á forsíðu, að slíta sambandi mínu og gera mig einhleypan. Þetta voru talsverðar fréttir fyrir okkur Gígja Skúladóttir. Ef blaðið hefði aðeins vandað heimildarvinnuna og lagst í smávægilegar rannsóknir, t.d. hringt í mig, hefði það ekki gert sjálft sig að þessu ótrúlega rusli, enn eina ferðina. Skrápurinn á mér er þverhandarþykkur en svona óðgeðslegheit geta verið særandi fyrir aðra sem málið varðar. Kappið og sóknin eftir aumustu lágkúru er yfirgengileg,“ segir Kristinn á Facebooksíðu sinni, og ljóst er að það er þungt í honum.Kristinn verður líka á næstu forsíðu Séð og heyrt Vísir náði tali af Ástu Hrafnhildi en hún er nú stödd úti í London að kaupa jólagjafir. Hún var létt og kát og virtist ekki hafa þungar áhyggjur af þessari yfirhalningu.Kristinn Hrafnsson hellir sér yfir tímaritið Séð og heyrt og segir það aumustu lágkúru. Kristinn er ósáttur við að vera skyndilega orðinn einhleypur á forsíðunni þar.„Okkar vinnubrögð eru þannig að við hringjum nánast undantekningarlaust í fólk. En við töldum okkur hafa mjög áreiðanlegar heimildir fyrir þessu. Fengum ábendingar um það frá þó nokkuð mörgum aðilum að þessi væri staðan. Og þar sem um svo margar ábendingar var að ræða töldum við að málið væri svona vaxið.“ Ásta Hrafnhildur segir að hún muni að sjálfsögu leiðrétta þetta í næsta blaði og biðja viðkomandi afsökunar. „Kristinn verður á forsíðu næsta tölublaðs líka, ásamt risastórri afsökunarbeiðni. Alveg sjálfsagt mál.“Ástarmál Ástu sjálfrar í kastljósinu Varðandi þetta með að Ásta Hrafnhildur og Séð og heyrt sé yfirgengileg lágkúra sem stundar að birta ógeðslegheit sem særa fólk segist hún ekki hafa neitt um það að segja. „Ég hef heyrt og séð svo margt í þessu starfi, bæði sem blaðamaður undir ritstjórn Eiríks Jónssonar og svo sjálf sem ritstjóri. Það verður hver og einn af hafa þessi orð um hlutina sem þeim þykir best til þess fallin. Ef Kristinn vill lýsa þessu með þessum hætti þá eru það bara hans orð. Ég legg ekki í vana minn að munnhöggvast við fólk, það er ekki minn stíll. Og gerir ekki lífið skemmtilegra eins og Séð og heyrt á að gera.“Ekkert er hæft í frétt lærimeistara Ástu Hrafnhildar, Eiríks Jónssonar, að hún sé nú í tygjum við Björn Jón ritstjóra. Hún er hins vegar að hitta Svein Andra sem er allt önnur saga.En, talandi um þetta og Eirík verður ekki hjá því komist að spyrja Ástu Hrafnhildi um ástarmál hennar sjálfrar. Eiríkur Jónsson birti frétt á vef sínum þar sem segir að hún sé komin með „nýjan herra upp á arminn en sá er Björn Jón Bragason ritstjóri Reykjavík Vikublað. Ásta hefur verið í tygjum við stjörnulögfræðinginn Svein Andra að undanförnu en svo ótrúlega vill til að hann lækar myndbirtinguna á Facebook fyrstur manna!“Er að „deita“ Svein Andra ekki Björn Jón Ásta Hrafnhildur hlær dátt þegar hún er spurð út í þennan nýjasta kærasta. „Þetta er mjög einfalt. Staðan er eftirfarandi að á kosningakvöldi var ég að labba um með Birni Blöndal ljósmyndara mínum, fór á milli kosningamiðstöðva. Leit við hjá Sjálfstæðismönnum og þar svifu á mig hinir ýmsu menn sem vildu fá af sér myndir með mér. Meðal annars Baldvin Jónsson og það birtist í Mogganum. Og svo er það þessi ungi maður sem kynnti sig, vildi ræða um blaðið og það smellti ung kona ljósmynd af því.“ Ásta Hrafnhildur segir þetta tilbúning hjá lærimeistara sínum í blaðamennskunni, Eiríki Jónssyni. Vísir spurði hana þá út í sambandið við Svein Andra. Ásta vildi fyrst engu svara en gaf sig svo og sagði að þau væru að „deita“. „Já, það er staðreynd. Eiríkur Jónsson á það til að gifta mig reglulega. Ég veit ekki hvort það er hvort honum þyki ég ekki nógu sniðug að velja mér mannsefni og gæti verið að hann vilji hlutast til um þetta. Hann hefur ákveðnar skoðanir á þessu og hefur alltaf haft.“
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira