Landspítalinn vill orlofsíbúðir stéttarfélaganna fyrir veikt fólk utan af landi Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 10. nóvember 2016 11:26 Drífa Snædal segir ótækt að stéttarfélögin þurfi að bæta fyrir síversnandi heilbrigðistþjónustu. vísir/vilhelm
Landspítalinn hefur formlega óskað eftir því við verkalýðsfélög um allt land að fá að nýta orlofsíbúðir félaganna í Reykjavík þegar þörf er á að vista þungaðar konur eða foreldra utan af landi vegna veikinda á meðgöngunni. Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, segir ófært að treyst sé á að stéttarfélögin bæti fyrir versnandi heilbrigðisþjónustu fyrir fólk utan höfuðborgarsvæðisins. „Orlofsíbúðirnar hafa verið nýttar í þessum tilgangi og munu að sjálfsögðu verða nýttar í þetta áfram. Það sem hins vegar við viljum vekja athygli á er að það er síaukin krafa á stéttarfélagið að bæta fyrir síversnandi þjónustu fyrir fólk utan af landi,“ segir Drífa. Íbúðirnar séu hugsaðar sem orlofsíbúðir þeirra sem greiði í stéttarfélögin, ekki sem hluti af heilbrigðiskerfinu. „Það hefur verið dregið úr heilbrigðisþjónustu úti á landi sem þýðir það að fólk þarf að eyða meiri tíma og meiri peningum í það að sækja sér þjónustu til höfuðborgarsvæðisins. Það er ófært að stéttarfélögum verði gert að liðka fyrir versnandi þjónustu, að taka á sig versnandi þjónustu við fólk utan höfuðborgarsvæðisins,“ segir hún. Drífa segir að hið opinbera eigi að sinna skyldum við fólk annars staðar af landinu og ekki treysta á sjóði sem félagsmenn stéttarfélaganna hafi byggt upp í áratugi. Það sé skýr krafa aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins að tryggt verði jafnræði milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis og sinni skyldum sínum gagnvart veiku fólki og þunguðum konum sem ekki geti sótt þjónustu í heimabyggð. „Það eru orlofsíbúðir um allt land og það er mjög mikil ásókn í þær. Það er hægt að vera með 100 prósent nýtingu bara af fólki sem vill vera í fríum og orlofi. Þetta er hugsað til að bæta lífsgæði félaga. Félagar greiða í þessa sjóði í gegnum sína kjarasamninga, þetta er hluti af þeirra launum sem fara í þetta, og þannig er þetta hugsað og þannig á að nota þetta,“ segir Drífa Snædal.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira