Halda áfram rannsókn á klessubílunum í Smáralind Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 10. nóvember 2016 13:25 Tækinu var lokað eftir óhappið. Vinnueftirlitið telur ekki þörf á að loka tækinu, en segir þó að þörf sé á frekari skoðun. vísir/ernir
Ekki voru forsendur til þess að banna áframhaldandi notkun á klessubílatækinu í tívolí-inu í Smáralind en þó er enn þörf á frekari skoðun, segir Sigurður Sigurðsson, svæðisstjóri fyrirtækjaeftirlits hjá Vinnueftirlitinu. Vinnueftirlitið fer með rannsókn á óhappi sem varð í tívolíinu um síðustu helgi þegar sjö ára stúlka fékk raflost í tækinu.Ekki hætta á ferðum „Það eru atriði sem við erum að skoða nánar. Við þurfum að vita meira um þennan búnað, en það er rétt að taka fram að það er ekki hætta á ferðum, og þess vegna voru ekki forsendur til annars en að létta banninu,“ segir Sigurður, en Vinnueftirlitið lét loka tækinu eftir slysið. Stúlkan slasaðist ekki alvarlega, en veski sem stúlkan hafði meðferðis festist í tækinu með þeim afleiðingum að skammhlaup varð. „Ef barn meiðir sig eða er í hættu þá hlaupa allir til hérna og það er búinn að fara drjúgur tími í þetta, og við erum og munum skoða þetta alvarlega,“ segir Sigurður.Gert að bæta starfsþjálfun Þeim tilmælum hefur verið beint til Smáratívolís að skerpa á þjálfun starfsfólks og bæta merkingar. „Það eru merkingar á staðnum, en fólk vissi samt ekki að það mætti ekki hafa neitt á sér. Það hefur verið bætt og það leysir vandann töluvert, en það er eitthvað útistandandi sem við þurfum að skoða nánar.“ Sigurður segir að þegar hafi verið haft samband við framleiðendur leiktækisins. „Það er almenn regla í merkingum að tæki eiga að þola það sem kallað er ætluð misnotkun. Það er eitthvað sem hvílir á framleiðendum, þannig að þetta verður unnið í samstarfi við þá og skoðað mjög alvarlega.“
Tengdar fréttir Klessubílunum í Smáratívolí lokað eftir að sjö ára stúlka fékk raflost Stúlkan var að keyra klessubíl þegar keðjuól veskis sem hún bar datt í gólfið með þeim afleiðingum að skammhlaup varð og hún fékk straum. 6. nóvember 2016 21:55 Klessubílatækið opnað aftur Sjö ára stúlka fékk raflost í tækinu. 7. nóvember 2016 17:04 Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Fleiri fréttir Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Sjá meira
Klessubílunum í Smáratívolí lokað eftir að sjö ára stúlka fékk raflost Stúlkan var að keyra klessubíl þegar keðjuól veskis sem hún bar datt í gólfið með þeim afleiðingum að skammhlaup varð og hún fékk straum. 6. nóvember 2016 21:55