Kvörtun til ráðherra afgreidd án áminningar Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. nóvember 2016 07:00 Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri
Samskipti Haraldar Benediktssonar alþingismanns og Guðmundar Árnasonar, ráðuneytisstjóra í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, munu ekki hafa nein eftirmál. Haraldur kvartaði til Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, eftir að Guðmundur hringdi í hann til að ræða efni skýrslu sem þingmennirnir Vigdís Hauksdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson kynntu fjölmiðlum í september og þau kölluðu „Einkavæðing bankanna hin síðari“. Taldi Haraldur að í samtalinu hefði Guðmundur hótað sér æru- og eignamissi. „Það kom svarbréf,“ segir Haraldur um niðurstöðu málsins og bætir við að efnislega sé niðurstaðan sú að málið sé úr sögunni. „Ráðherra fékk aðstoð hjá ríkislögmanni við að meðhöndla erindið og það endaði með þeim hætti að kvörtun mín var tekin fyrir og það var ekki veitt áminning eða neitt slíkt,“ segir hann. Guðmundur Árnason viðurkenndi í yfirlýsingu til fjölmiðla að í samtali sínu við Harald hefði hann tjáð Haraldi þá skoðun sína að í skýrslunni væru rætnar og alvarlegar ásakanir á hendur þeim sem komu að samningum milli gömlu og nýju bankanna af hálfu ríkisins. Guðmundur segist hafa viljað ganga úr skugga um að Haraldur áttaði sig á alvarleika slíkra ásakana og að umræddir starfsmenn áskildu sér rétt til að láta reyna á persónulega ábyrgð þeirra sem slíku héldu fram fyrir dómstólum, enda æra þeirra og starfsheiður í veði. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Sjá meira