Upplýsa pólska innflytjendur um lungnakrabbamein Svavar Hávarðsson skrifar 17. nóvember 2016 07:00 160 manns greinast með krabbamein í lungum á hverju ári hérlendis - þrír af hverjum 10 lifa ár frá greiningu. NordicPhotos/AFP
Brugðist hefur verið við grun um að tíðni reykinga sé töluvert hærri í hópi innflytjenda en annarra landmanna með útgáfu á upplýsingaefni um lungnakrabbamein á pólsku. Alþjóðadagur lungnakrabbameins er í dag og ákvað samstarfshópur um lungnakrabbamein á Landspítala að gefa út bækling um sjúkdóminn á pólsku. Fyrri útgáfur upplýsingaefnisins voru aðeins gefnar út á íslensku og ensku. Markmiðið er að allir sem greinast með lungnakrabbamein hér á landi fái bæklinginn í hendur við greiningu en þeir eru árlega um 160 talsins. Á Íslandi eru innflytjendur um tíu prósent landsmanna og um 40 prósent þessara rúmlega 30 þúsund innflytjenda eru Pólverjar, sem ekki allir tala ensku. Mjög hefur skort á upplýsingar til þessara einstaklinga og ættingja þeirra, er mat þeirra íslensku sérfræðinga sem standa að útgáfunni. Efni útgáfunnar miðast við hérlendar aðstæður. Aðaláherslur eru á nýjungar í meðferð, bæði lyfja- og geislameðferð, en einnig framfarir í skurðaðgerðum. Einnig er fjallað um berkjuómspeglun (EBUS) sem nú er gerð á Íslandi, en einnig jáeindaskanna sem væntanlegur er hingað til lands innan skamms. Loks er lögð áhersla á reykingavarnir og hvernig hætta má reykingum, en 90% lungnakrabbameins má rekja til reykinga. Þetta telja höfundar mikilvægt atriði því óvíða í heiminum hefur náðst jafn góður árangur í reykingavörnum og hér á landi, en aðeins um ellefu prósent fullorðinna Íslendinga reykja. Lungnakrabbamein eru algengasta dánarorsök af völdum krabbameina meðal iðnvæddra vestrænna þjóða. Meinin voru áður tvöfalt algengari hjá körlum en konum, en nú eru þau nánast jafn algeng hjá báðum kynjum. Er nú svo komið að það er orðið næstalgengasta krabbameinið bæði meðal karla og kvenna. Brjóstakrabbamein er algengara hjá konum og blöðruhálskirtilskrabbamein hjá körlum. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Bað um myndir af kynfærum tíu ára stúlku Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Sjá meira