Ekki til nýjar Tetra- talstöðvar fyrir alla Þorgeir Helgason skrifar 19. nóvember 2016 07:00 Slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir Tetra-samskiptakerfið lífsnauðsynlegt við störf slökkviðliðsins. vísir/vilhelm
Viðkvæmar upplýsingar sem mikilvægustu viðbragðsaðilar landsins hafa tjáð sig um í gegnum Tetra-samskiptakerfið hafa verið aðgengilegar á vefsvæði mánuðum saman. Lögregluna hefur grunað í tvö ár að einhver hafi hakkað sig inn á kerfið en aðhafðist ekki fyrr en á miðvikudag. Meðal upplýsinga sem leynast á síðunni eru samskipti lögreglunnar um líkamsárás, sem átti sér stað í heimahúsi á Höfn í Hornafirði í fyrrakvöld. „Við dulkóðuðum okkar samskipti á hádegi á miðvikudag. Við hefðum getað dulkóðað í vor ef við værum ekki í samvinnu við ýmsa samstarfsaðila,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Dulkóðun á samskiptum lögreglunnar lauk í gærkvöldi en aðrir hafa þurft að bíða eftir uppfærslunni. Skipta þarf út gömlum talstöðvum fyrir nýjar. Tetra-samskiptakerfið er í eigu íslenska ríkisins og rekið af Neyðarlínunni. Öll embætti lögreglu, slökkvilið landsins, sjúkraflutningamenn, björgunarsveitir, Strætó bs., orkufyrirtæki og bílstjórar ráðherra og forseta Íslands reiða sig á kerfið.Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu.vísir/stefán„Þetta kom eins og köld gusa framan í okkur. Strax og við fréttum af þessu breyttum við öllum samskiptavenjum okkar, þannig að persónulegar upplýsingar eins og kennitölur, nöfn, heimilisföng, sjúkdómseinkenni og annað fer ekki í gegnum Tetra-kerfið. Eins og er notum við GSM-síma til að miðla þessum upplýsingum,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins. Hann segir að ekki hafi verið hægt að leggja kerfið til hliðar vegna þess að það er lífsnauðsynlegt við störf slökkviliðsins og sjúkraflutningamanna. Það sem að liggur fyrir er að við þurfum að endurnýja okkar búnað og við gerum það í samstarfi við Neyðarlínuna. Við þurfum að bíða eftir talstöðvum sem verið er að senda frá Berlín, enda átti Neyðarlínan ekki til lager af þeim,“ segir Jón Viðar. Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir að verið sé að skoða hvort uppfæra þurfi kerfið en ekki liggi fyrir endanleg ákvörðun um það. „Við höfum ekki haft stórkostlegar áhyggjur af þessu af því að samskipti okkar eru ekki leynileg. Þau eru aðallega um hvar strætisvagninn er staddur,“ segir Jóhannes. Landspítalinn lagði niður kerfið á miðvikudag og hefur síðan þá notað GSM-síma við samskipti innanhúss. Þá hefur Landsvirkjun ákveðið að endurnýja allar Tetra-talstöðvar sínar. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Bað um myndir af kynfærum tíu ára stúlku Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Sjá meira