Ætti að vera ráðamönnum umhugsunarefni hvaða árangri Landspítali gæti náð sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 19. nóvember 2016 10:29 Páll Matthíasson, forstjóri LSH
Það ætti að vera ráðamönnum umhugsunarefni hvaða árangri Landspítali gæti náð væru starfseminni skapaðar eðlilegar forsendur, sér í lagi til úrræða þegar eiginlegri spítalameðferð sleppir, segir Páll Mattíhasson, forstjóri Landspítalans. „Það gengur mikið á hjá okkur á Landspítala öllu jafna og ekki hvað síst síðustu daga og vikur þegar stöðugar fréttir hafa verið af miklu álagi á spítalanum. Þar er engu orði ofaukið og aðdáunarhvert hvernig allir hafa lagst á eitt til að láta starfsemina ganga við þessar erfiðu aðstæður. Það ber að þakka,” segir Páll í forstjórapistli á vefsíðu Landspítalans. Páll segir að þriggja ára átak Landspítalans, sem hófst í mars í þessu ári, sé farið að skila árangri. Nú þegar níu mánuðir séu liðnir frá því að verkefnið hófst bendi margt til þess að markmiðið að gera biðtíma eftir aðgerðum sem það nær til styttri en þrjá mánuði sé að nást. „Markmiðið er sömuleiðis að ná sem bestum árangri við styttingu á biðtíma eftir öllum aðgerðum. Sem dæmi um árangur þá hefur bið eftir bæklunaraðgerðum þegar styst um helming eða úr 16,7 mánuðum í 8,6 mánuði, augnaðgerðum úr 18,5 mánuðu í 10 og nú er biðtími eftir hjartaþræðingum rúmir 5 mánuðir í stað 9 áður,” segir Páll. Samhliða þessu hafi tekist að minnka meðalbiðtíma aðgerða sem séu utan hins skilgreinda átaks. „T.d hefur biðtími eftir almennum skurðlækningum minnkað úr 7,3 mánuðum í 3,6 og í kvenlækningum úr 11,4 í 7,8 mánuði,” segir hann. Í ljósi þessa ættu ráðamenn að huga að því hvaða árangri Landspítalinn gæti náð.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Bað um myndir af kynfærum tíu ára stúlku Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Sjá meira