Tólf mánaða fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás á Spot Anton Egilsson skrifar 3. nóvember 2016 22:52 Líkamsárásin átti sér stað á skemmtistaðnum Spot. Vísir/Heiða
Karlmaður var dæmdur til tólf mánaða fangelsisvistar fyrir stórfellda líkamsárás á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi. Hann gerðist sekur um að hafa hrint manni með þeim afleiðingum að hann hlaut lífshættulega og alvarlega höfuðáverka. Lögregla var kvödd á skemmtistaðinn Spot í Kópavogi, þar sem tilkynnt hafði verið um að maður væri meðvitundarlaus innan dyra. Þegar lögregla mætti á vettvang var þeim vísað á dansgólfið þar sem maðurinn lá meðvitundarlaus í blóði sínu en mikið blæddi bæði úr höfði og eyra hans. Vitni kom að tali við lögreglu á skemmtistaðnum og sagðist sá hafa séð árásina. Gat hann bent lögreglumönnunum á árásarmanninn sem þá var á leið út um aðaldyr staðarins. Veitti lögregla manninum eftirför og náðist hann stuttu síðar. Fram kom í vitnisburði læknis við meðferð málsins að höfuðkúpubrot sem brotaþoli hlaut við að falla í gólfið væri til marks um að honum hefði verið hrint með talsverðu afli.Kannaðist ekki við ásakanirnarFyrir dómi sagðist maðurinn ekki kannast við það sem honum væri gefið að sök í málinu. Frásögn mannsins bar ekki saman við þær frásagnir sem vitni gáfu fyrir dómi. Tvö vitni í málinu báru um það að hafa séð manninn ýta fórnarlambinu af afli eða nokkrum krafti. Héraðsdómur sakfelldi manninn fyrir stórfellda líkamsárás en í niðurstöðu dómsins segir að fórnarlamb árásarinnar hafi hlotið alvarlega áverka af atlögunni og búi við varanlegar afleiðingar hennar. Þá sé ráðið af framburði vitna að tilefni árásarinnar hafi ekki verið annað en það að fórnarlamb hennar hafi rekist utan í árásarmanninn í mannþrönginni á dansgólfinu.Hér má lesa Héraðsdóm Reykjavíkur í heild sinni.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira