Ingunn Einarsdóttir er látin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. nóvember 2016 22:57 Ingunn Einarsdóttir á hlaupabrautinni. Myndin er af vef Frjálsíþróttasambands Íslands.
Ingunn Einarsdóttir ein fyrsta afrekskona Íslendinga í frjálsíþróttum er látin eftir erfið veikindi aðeins 61 árs að aldri. Hún var búsett í Hollandi þar sem hún rak nuddstofu um árabil. Frá þessu er greint á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands. Ingunn var á tímabili ósigrandi í spretthlaupum hér á landi og setti fjölda landsmeta í 100 m, 200 m og 400 m hlaupum. Hún átti einnig met í 100 m grindahlaupi og fimmtarþraut og setti eitt árið m.a. 10 landsmet. Hún keppti á Evrópumeistaramótinu í Helsinki árið 1971, önnur íslenskra kvenna. Íslandsmet hennar í 100 m hlaupi, 11,8 sek. frá 1977, stóð í 11 ár og er enn 12. besti árangur á landinu í þeirri grein. Ingunn hóf íþróttaferil sinn hjá KA á Akureyri þar sem hún er fædd og uppalin, en fluttist síðar til Reykjavíkur og hóf keppni með ÍR árið 1972. Ingunn var mikill brautryðjandi kvenna í íþróttum og fyrsta afrekskona Akureyringa í frjálsíþróttum. Hún var einnig góð fyrirmynd og hvatti aðra til dáða. Ennfremur var hún drjúg í landskeppnum fyrir hönd Íslands. Meiðsli komu í veg fyrir þátttöku hennar á Ólympíuleikunum 1976, en árangur hennar á næstu árum sýndi að hún átti fullt erindi á alþjóðleg stórmót. Ingunn var afburða duglegur íþróttamaður og var í fyrsta sigurliði ÍR í Bikarkeppni FRÍ árið 1972, sem var upphafið af 16 ára sigurgöngu liðsins. Bakmeiðsli bundu ótímabæran enda á íþróttaferil hennar. Frjálsíþróttahreyfingin á Íslandi þakkar Ingunni fyrir samfylgdina og sendir fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Að neðan má sjá fjölmargar myndir af Ingunni og afrekum hennar í frjálsíþróttum í gegnum árin.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Fleiri fréttir „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“