Ofþjálfun klínískt vandamál hjá íslenskum ungmennum Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 6. nóvember 2016 20:10
Ofþjálfun er klínískt vandamál hjá íslenskum ungmennum samkvæmt nýrri rannsókn. Dæmi eru um að þrettán til átján ára krakkar æfi 27 klukkustundir á viku. Sjúkraþjálfarar og íþróttaþjálfarar eru á einu máli um að efla þurfi forvarnir vegna ofþjálfunar. Ofþjálfun er uppsafnað álag vegna þjálfunar. Tíu helstu einkenni ofþjálfunar eru orkuleysi, breyting á matarlyst, einkenni þunglyndis, stoðkerfisverkir, minni áhugi og ójafnvægi, óútskýrt þyngdartap, skert frammistaða, svefntruflanir og síþreyta. Í rannsókninni var spurningalisti lagður fyrir sjúkraþjálfara og þjálfara í fimleikum, frjálsum, sundi og boltaíþróttum sem meta tíðni ofþjálfunar allt upp í tuttugu prósentum tilfella sem þýðir með öðrum orðum að um klínískt vandamál sé að ræða. Samkvæmt rannsókninni æfa ungmenni boltagreinar í allt að átta klukkustundir á viku. Frjálsar íþróttir í allt að fimmtán klukkustundir, sund allt að 21 klukkustund á viku og fimleika í allt að 27 klukkustundir á viku sem er nærri því 75 prósent starfshlutfall.Þýðir þetta að íslensk ungmenni séu að æfa of mikið? „Í einhverjum tilfellum, já. Kannski ekkert rosalega stór hópur en einhverjir og við þurfum að vinna í því,“ segir Þóra Hugosdóttir sjúkraþjálfari og rannsakandi. Meirihluti þátttakenda í rannsókninni telja fræðslu og forvarnarstarf um ofþjálfun vera ábótavant en sextíu prósent íþróttadeilda eru ekki með neina fræðslu um ofþjálfun. „Við þurfum að efla forvarnir og fræða ungmenni, þjálfara og heilbrigðisstarfsmenn. Íþróttahreyfingin þarf að hafa það að markmiði að íþróttir séu stundaðar til heilsubótar og að hreyfing sé til heilsubótar,“ segir Ágústa Ýr Sigurðardóttir sjúkraþjálfari og rannsakandi.En hvað segja ungmennin sjálf? „Ég hef fengið álagsmeiðsli bæði í höndina og fæturna, beinhimnubólgu, en það stoppaði mig ekkert. Ég vann bara í því með sjúkraþjálfara,“ segir Ásta Kristinsdóttir sem æfir hópfimleika.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira