Dæmdur fyrir árás gegn sjö ára barni: „Svona búmm, búmm, beint í vegginn“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 8. nóvember 2016 16:57 Drengurinn lýsti því við skýrslutöku lögreglu með látbragði og orðum hvernig faðirinn hefði tekið í hár sitt og ýtt höfði sínu aftur: „Svona búmm, búmm, beint í vegginn,“ sagði drengurinn. vísir/valli
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann, sem ákærður var fyrir brot gegn barnaverndarlögum og líkamsárás gegn sjö ára dreng, til þess að greiða 300 þúsund króna sekt til ríkissjóðs. Maðurinn var sakaður um að hafa rifið í hár drengsins og slengt höfði hans í vegg á síðasta ári með þeim afleiðingum að drengurinn hlaut yfirborðsáverka á hársverði. Drengurinn sagðist í skýrslutöku lögreglu hafa verið að leika sér við vin sinn inni í búningsklefa og lyft honum upp, með þeim afleiðingum að vinur hans datt í gólfið og meiddi sig. Hann sagði föður vinar síns hafa komið inn í búningsklefann skömmu síðar og orðið mjög reiður, rifið í hár sitt og slengt höfði sínu í vegg allt að fimm sinnum. Ákærði neitaði sök í málinu. Sagðist hann hafa komið að syni sínum, sem hafi verið með sprungna vör og grátandi í búningsklefanum eftir að hafa dottið á andlitið, og því óskað eftir skýringum frá vini sonar síns. Drengurinn hafi hins vegar ekki viljað tala við sig og togað bol sinn yfir höfuðið. Því hafi hann reynt að losa bolinn með fingri og sagðist hann ekki útiloka það að fingurinn hefði þá strokist við andlit drengsins. Þá hafi hann sagt við drenginn að hann myndi ræða við foreldra hans og þjálfara, og í kjölfarið yfirgefið búningsklefann. Þegar frásögn drengsins var borin undir manninn sagðist hann ekki vita hvað hann ætti að segja, en að kannski hafi drengurinn rykkt sér til þegar hann reyndi að toga í bol hans, með þeim afleiðingurinn að drengurinn hafi rekið höfuðið í vegginn, án þess þó að hafa veitt því athygli. Drengurinn lýsti því við skýrslutöku lögreglu með látbragði og orðum hvernig faðirinn hefði tekið í hár sitt og ýtt höfði sínu aftur: „Svona búmm, búmm, beint í vegginn,“ sagði drengurinn. Hann sagði höfuð sitt hafa farið „mjög oft“ í vegginn, eða „svona fimm eða tíu sinnum.“ Lýsti hann því jafnframt að veggurinn hafi ekki verið sléttur, heldur eins og malbil, og að það hefðu verið „oddar“ á veggnum. Þá hafi faðirinn sagt við sig „Svaraðu, svaraðu“ á meðan hann hafi gert þetta. Drengnum sagðist hafa liðið mjög illa og farið að hágráta. Í niðurstöðu dómsins segir að samræmi hafi verið í framburði drengsins og annars drengs, átta ára, sem var inni í búningsklefanum þegar atvikið átti sér stað. Sá fyrrnefndi hafi hins vegar gengið lengra í lýsingunum. Þá segir í dómnum að litið hafi verið til þess að gögn málsins beri með sér að maðurinn hafi verið í ójafnvægi þegar hann olli brotinu eftir að hafa komið að syni sínum meiddum í búningsklefanum. Hæfileg refsing hafi verið ákveðin 300 þúsund króna sektargreiðsla, innan fjögurra vikna, en ella sæti maðurinn fangelsi í 20 daga. Maðurinn hefur ekki sætt refsingu áður.
Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri fréttir Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Sjá meira