Gleymdist að loka og læsa hnífaskúffunni Þorgeir Helgason skrifar 15. október 2016 07:00 Maðurinn þegar hann var leiddur fyrir dómara í október í fyrra. Hann tekur nú lyfin sín og er mikill munur á honum samkvæmt geðlækni. vísir/pjetur
Aðalmeðferð í manndrápsmáli, sem kennt er við Miklubraut, lauk í vikunni. Ríkissaksóknari ákærði 39 ára karlmann fyrir að hafa orðið manni að bana í búsetukjarna fyrir geðfatlaða við Miklubraut þann 22. október í fyrra. Í skýrslutökum kom fram að ekkert eftirlit var haft með lyfjagjöf mannsins en hann er greindur með geðklofa. „Þetta er auðvitað heimili fólks en ekki heilbrigðisstofnun. Það er mikilvægt að hafa það í huga. Í einhverjum tilvikum er verið að fylgjast með því hvernig fólk tekur lyfin sín en það er alfarið undir stjórn eða áætlun sem heilbrigðisstofnun eða læknir setur fram,“ segir Stefán Eiríksson, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Við aðalmeðferð kom fram að lyf sem maðurinn hefði átt að taka hefðu fundist í miklu magni í herbergi hans og að gleymst hefði að læsa hnífaskúffu sem geymdi morðvopnið. Myndir í dómskjölum sýna greinilega að neysla fíkniefna átti sér stað innandyra í búsetukjarnanum. „Ástandið slær mann illa, sem hefur viðgengist þarna. Það er alveg ljóst að þarna eru menn í mjög slæmu ástandi,“ segir Bjarni Hauksson hrl. og verjandi mannsins. Sigurður Pálsson geðlæknir hefur haft manninn, sem ákærður er fyrir manndrápið, til meðferðar. Fyrir dómi vitnaði Sigurður um ástand mannsins og sagði vera mikinn mun á honum, núna þegar hann væri aftur farinn að taka lyfin. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa veist að 59 ára sambýlismanni sínum með hnífi og stungið hann að minnsta kosti 47 stungum í líkamann, með þeim afleiðingum að sá sem hann réðst á hlaut bana af. Ákæruvaldið krefst þess aðallega að maðurinn verði dæmdur til refsingar en til vara að honum verði gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Dómur verður kveðinn upp í byrjun nóvember. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira