Mikill áhugi á þjónandi leiðsögn Halldór S. Guðmundsson og Kristinn Már Torfason skrifar 6. október 2016 07:00 Á Akureyri hefur verið unnið eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar (e. gentle teaching) í tveimur búsetukjörnum frá árinu 1993 en undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að því að innleiða aðferðina í alla þjónustu búsetudeildar Akureyrarkaupstaðar og Öldrunarheimila Akureyrar. Í þjónandi leiðsögn byggja samskipti á virðingu og umhyggju og áherslu á að skapa traust milli einstaklinga – aðstoðarþega og umönnunaraðila. Það felur í sér að refsingar, líkamlegar eða andlegar eru aldrei notaðar til að ná fram breytingu.Mannúðleg hugmyndafræði Þungamiðja þjónandi leiðsagnar er að þátttaka umönnunaraðila í lífi annarra hafi þann megintilgang að kenna, hlúa að og viðhalda reynslu þeirra og upplifun af tengslum, vináttu og því að vera hluti af samfélaginu. Þjónandi leiðsögn er fræðileg og reynslubundin nálgun og hefur helst verið notuð innan fötlunarfræðinnar. Nálgunin byggir á heimspekilegum og siðferðilegum grunni og kenningum um samskipti og tengsl milli einstaklinga og hvernig nýta megi það í þjónustu og umönnun. Þjónandi leiðsögn einskorðast þó ekki aðeins við einstaklinga með þroskahamlanir heldur má í raun nota nálgunina í umönnun allra einstaklinga, þar sem hún byggir á mannúðlegri hugmyndafræði.Öldrunarheimilin og búsetudeild taka höndum saman Undanfarin ár hefur hugmyndafræðin verið tekin í notkun á Öldrunarheimilum Akureyrar (ÖA). Unnið er að undirbúningi og innleiðingu þjónandi leiðsagnar og samþættingu með Eden-hugmyndafræðinni á ÖA. Sú vinna hófst með skipulegum hætti í ársbyrjun 2014 með þátttöku leiðandi starfsmanna í námskeiðum og ráðstefnum og nú síðast með innleiðingarferli og fræðslu til u.þ.b. 300 starfsmanna ÖA á árinu 2015 og 2016. Lykilstarfsmenn búsetudeildar hafa sinnt fræðslu og hlutverki leiðbeinenda til nýrra starfsmanna og aðstandenda. Fræðslu- og kynningarfundir hafa verið haldnir víða um land og mikill fjöldi starfsfólks í velferðarþjónustu sveitarfélaga fengið fræðslu og kynningu á þjónandi leiðsögn. Af hálfu búsetudeildar hafa líka verið haldin námskeið fyrir nýja leiðbeinendur og erlendir fyrirlesarar og þjálfarar verið fengnir til aðstoðar, enda krafa um staðfestingu alþjóðasamtaka þjónandi leiðsagnar, fyrir nýja leiðbeinendur.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Á Akureyri hefur verið unnið eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar (e. gentle teaching) í tveimur búsetukjörnum frá árinu 1993 en undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að því að innleiða aðferðina í alla þjónustu búsetudeildar Akureyrarkaupstaðar og Öldrunarheimila Akureyrar. Í þjónandi leiðsögn byggja samskipti á virðingu og umhyggju og áherslu á að skapa traust milli einstaklinga – aðstoðarþega og umönnunaraðila. Það felur í sér að refsingar, líkamlegar eða andlegar eru aldrei notaðar til að ná fram breytingu.Mannúðleg hugmyndafræði Þungamiðja þjónandi leiðsagnar er að þátttaka umönnunaraðila í lífi annarra hafi þann megintilgang að kenna, hlúa að og viðhalda reynslu þeirra og upplifun af tengslum, vináttu og því að vera hluti af samfélaginu. Þjónandi leiðsögn er fræðileg og reynslubundin nálgun og hefur helst verið notuð innan fötlunarfræðinnar. Nálgunin byggir á heimspekilegum og siðferðilegum grunni og kenningum um samskipti og tengsl milli einstaklinga og hvernig nýta megi það í þjónustu og umönnun. Þjónandi leiðsögn einskorðast þó ekki aðeins við einstaklinga með þroskahamlanir heldur má í raun nota nálgunina í umönnun allra einstaklinga, þar sem hún byggir á mannúðlegri hugmyndafræði.Öldrunarheimilin og búsetudeild taka höndum saman Undanfarin ár hefur hugmyndafræðin verið tekin í notkun á Öldrunarheimilum Akureyrar (ÖA). Unnið er að undirbúningi og innleiðingu þjónandi leiðsagnar og samþættingu með Eden-hugmyndafræðinni á ÖA. Sú vinna hófst með skipulegum hætti í ársbyrjun 2014 með þátttöku leiðandi starfsmanna í námskeiðum og ráðstefnum og nú síðast með innleiðingarferli og fræðslu til u.þ.b. 300 starfsmanna ÖA á árinu 2015 og 2016. Lykilstarfsmenn búsetudeildar hafa sinnt fræðslu og hlutverki leiðbeinenda til nýrra starfsmanna og aðstandenda. Fræðslu- og kynningarfundir hafa verið haldnir víða um land og mikill fjöldi starfsfólks í velferðarþjónustu sveitarfélaga fengið fræðslu og kynningu á þjónandi leiðsögn. Af hálfu búsetudeildar hafa líka verið haldin námskeið fyrir nýja leiðbeinendur og erlendir fyrirlesarar og þjálfarar verið fengnir til aðstoðar, enda krafa um staðfestingu alþjóðasamtaka þjónandi leiðsagnar, fyrir nýja leiðbeinendur.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar