Mega tækla áhorfendur Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 13. ágúst 2016 10:30 Hugleikur, Jonathan og Steindór verða örugglega í stuði og kvöld og Steindór segir allt geta gerst. Vísir/Hanna „
Þetta verður eins og Bylgjulestin fyrir skrýtið fólk,“ segir Steindór Grétar Jónsson, umsjónarmaður hlaðvarpsþáttarins Spinnipúkans. Á sunnudagskvöld munu umsjónarmenn Spinnipúkans ásamt íslensk/ástralska uppistandshlaðvarpinu Icetralia taka upp þætti ásamt áhorfendahóp. Umsjónarmenn Icetralia eru íslenski uppistandarinn Hugleikur Dagsson og ástralski uppistandarinn Jonathan Duffy. Áhorfendur eiga kost á því að taka að einhverju leyti þátt í hlaðvarpsþáttunum tveimur en þetta er í fyrsta sinn sem þættirnir eru teknir upp með áhorfendum. Steindór segist ekki viss um hvaða gest þeir Hugleikur og Jonathan muni kynna til leiks en sérlegur gestur Spinnipúkans er Hildur Lilliendahl Viggósdóttir. „Hún mun segja okkur sögur úr eigin lífi til þess að veita okkur innblástur og kveikja á hugmyndum til þess að nota í spunanum,“ segir Steindór. Hann vill þó ekki gangast við því að örli á samkeppni á milli hlaðvarpsþáttanna en viðurkennir að einhverjum bolabrögðum verði hugsanlega beitt. „Það er náttúrulega spurning hvort ég noti tækifærið og reyni að skemma þeirra þátt. Kannski hleyp ég upp á sviðið og tek mækinn. Svo mega áhorfendur náttúrulega reyna að hlaupa upp á svið og taka mækinn en þá megum við tækla þá. Það getur allt gerst,“ segir Steindór og hlær. Ásamt honum munu þau Ólafur Ásgeirsson, Sandra Barilli og Atli Már Steinarsson sjá um Spinnipúkann. „Það verður nóg af gríni og það er frítt inn. Þetta verður einhver algjör vitleysa og mjög fyndið. Herlegheitin fara fram á skemmtistaðnum Húrra og hefjast klukkan 20.00. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Bylgjulestin Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla ekki heima þegar hann mætti skríðandi eftir tólf daga ferðalag Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira