Fótboltamörk og trampólín á Bessastöðum Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 1. ágúst 2016 23:00 Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid eru nýju forsetahjón Íslands. Vísir/Eyþór
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur var settur inn í embætti forseta Íslands síðdegis í dag. Í ræðu sinni við embættistökuna þakkaði Guðni traustið sem honum hefði verið sýnt að taka við embætti forseta Íslands. Þá þakkaði hann jafnframt forverum sínum í embættinu, Ólafi Ragnari Grímssyni og Vigdísi Finnbogadóttur, fyrir þau ráð sem þau hefðu gefið nýju forsetahjónunum.Í viðtali við RÚV eftir athöfnina sagði Guðni að gengið væri út frá því að þingkosningar verði í haust. Hann sagði nánast allt stjórnmálalífið vera að setja sig í stellingar fyrir haustkosningar og að mikið verði að ganga á til að þau heit sem stjórnarflokkarnir gáfu í vor verði ekki efnd.Guðni Th. Jóhannesson þakkaði meðal annars forverum sínum í ræðu sinni í dag.Vísir/EyþórVonar að ríkisstjórnarmyndun gangi vel Guðni, sem þekkir embætti forseta Íslands býsna vel, segist vona að ríkisstjórnarmyndun tekist án aðkomu forsetans. Það sé forsetans að velja þann sem þyki líklegastur til að mynda stjórn og það þurfi ekki að vera leiðtogi stærsta flokksins eða sigurvegari kosninganna. Margt var um manninn við innsetningarathöfnina og meðal gesta voru handhafar forsetavaldsins, þingmenn og ríkisstjórn Íslands. Formenn allra stjórnmálaflokka, nema Framsóknarflokks voru viðstaddir athöfnina, en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var á ferðalagi og komst því ekki.Ljóst er að líf og fjör mun fylgja nýju forsetafjölskyldunni á Bessastaði.vísir/eyþórBörnin munu ganga í skóla á Álftanesi Guðni sagði einnig í viðtali við RÚV að ásýnd Bessastaða muni breytast töluvert með tilkomu fjölskyldu sinnar en hann og Eliza eiga saman fjögur börn og auk þess á Guðni dóttur úr fyrra hjónabandi. Þau hyggjast búa á Bessastöðum og börnin muni ganga í skóla á Álftanesi. „Það verða fótboltamörk og trampólín á grasinu fyrir framan Bessastaði,“ segir Guðni og ljóst er að forsetabústaðurinn mun iða af lífi næstu fjögur ár. Viðgerðir standa nú yfir á Bessastöðum, en búist er við að forsetafjölskyldan flytji í nýju heimkynni sín innan skamms. Ljóst er að gleðin hefur verið ríkjandi á Bessastöðum í kvöld, en þarf tóku Guðni og Eliza á móti gestum að athöfn lokinni. Nýr forseti veitti fjölmiðlum ekki viðtal við komu sína á Bessastaði í kvöld.
Tengdar fréttir Jakobína Thorarensen baldýraði borðana á treyju Elizu með gullþræði Eliza Reid var stórglæsileg í skautbúningi samsettum úr tveimur skautbúningum. 1. ágúst 2016 17:23 Innsetningarræða Guðna Th.: Ég á margt eftir ólært og mér gæti orðið á Guðni Th. Jóhannesson er sjötti forseti íslenska lýðveldisins. Hann ávarpaði þjóðina við innsetningarathöfn sína í dag. 1. ágúst 2016 17:12 Hátíðleg stund í þinghúsinu Guðni Th. Jóhannesson tekur við embætti forseta Íslands í dag. 1. ágúst 2016 16:01 Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Sjá meira
Jakobína Thorarensen baldýraði borðana á treyju Elizu með gullþræði Eliza Reid var stórglæsileg í skautbúningi samsettum úr tveimur skautbúningum. 1. ágúst 2016 17:23
Innsetningarræða Guðna Th.: Ég á margt eftir ólært og mér gæti orðið á Guðni Th. Jóhannesson er sjötti forseti íslenska lýðveldisins. Hann ávarpaði þjóðina við innsetningarathöfn sína í dag. 1. ágúst 2016 17:12
Hátíðleg stund í þinghúsinu Guðni Th. Jóhannesson tekur við embætti forseta Íslands í dag. 1. ágúst 2016 16:01