Örmagnaðist eftir 10 daga bið á flugvelli í Kína eftir konu sem hann kynntist á netinu Birgir Olgeirsson skrifar 2. ágúst 2016 11:18 „Einn daginn sendi hann mér mynd af flugmiðunum en ég hélt að það væri eitthvað grín,“ segir konan um Hollendinginn Alexander Pieter Cirk. Vísir/Facebook
Hollendingur á fimmtugsaldri er kominn í heimsfréttirnar fyrir að hafa ferðast um 4.500 kílómetra til að hitta konu sem hann hafði kynnst á netinu. Að sögn Alexander Pieter Cirk höfðu þau ákveðið að hittast á Changsha Huanghua-alþjóðaflugvellinum í Kína en þangað mætti konan aldrei. Eftir tíu daga bið á flugvellinum var Cirk fluttur örmagna á sjúkrahús.Samkvæmt kínverska fjölmiðlinum CCTV News hafði maðurinn átt í samskiptum við konuna, sem fjölmiðlar ytra hafa nafngreint sem Zhang, í tvo mánuði áður en hann ákvað að heimsækja hana. Fjölmiðlar í Kína höfðu samband við Zhang sem sagðist hafa haldið Cirk vera að grínast þegar hann sagðist ætla að heimsækja hana. Hún tók hann heldur ekki alvarlega þegar hann sendi henni mynd af flugmiðunum sínum til Kína. „Við vorum orðin nokkuð náin en á seinni stigum fannst mér framkoma hans í minn garð vera orðin kaldlynd. Einn daginn sendi hann mér mynd af flugmiðunum en ég hélt að það væri eitthvað grín. Hann hafði síðan ekki samband við mig aftur,“ er haft eftir Zhang. Fjölmiðlar virðast hafa gengið nokkuð hart að Zhang í þessu máli því þeir vildu fá að vita hvers vegna Cirk náði ekki í hana þegar hann var kominn til Kína. Sagðist Zhang hafa slökkt á símanum sínum á meðan hún gekkst undir og var að jafna sig eftir lýtaaðgerð í annarri kínverskri borg. Cirk var útskrifaður af sjúkrahúsi í gær og sneri aftur til Hollands. Zhang heldur því fram við fjölmiðla ytra að sambandi þeirra sé alls ekki lokið því hún ætlar að heimsækja Cirk þegar hann hefur náð heilsu aftur.
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira