Innlent

Fjölskyldudeilur héldu börnum frá skólasundi

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Í nokkur ár hafa staðið miklar deilur milli tveggja fjölskyldna á Þingeyri.
Í nokkur ár hafa staðið miklar deilur milli tveggja fjölskyldna á Þingeyri. vísir/pjetur
Tvö börn á Þingeyri mættu hvorki í leikfimi né skólasund í heilt ár vegna baðvarðar grunnskólans í bænum.

Miklar deilur hafa staðið milli foreldra barnanna og fjölskyldu baðvarðarins sem heitir Kristján Þ. Ástvaldsson. Kristján var kærður árið 2014 fyrir líkamsárás á móður barnanna en var sýknaður í héraðsdómi og í Hæstarétti. Í dóminum segir að lögreglustjórinn hafi ekki náð að sanna sekt Kristjáns.

Deilurnar hófust eftir að faðir barnanna lét yfirvöld vita af meintum tryggingasvikum Kristjáns. Í kjölfarið héldu foreldrar barnanna því fram að Kristján hefði ráðist á móðurina. Þá hafa ýmsar ásakanir komið frá fjölskyldunum hvorrar í garð annarrar.

Málið hefur farið víða en í dag er það á borði menntamálaráðuneytisins, umboðsmanns Alþingis og Ísafjarðarbæjar. Einnig hafa lögregluyfirvöld ítrekað haft afskipti af málinu. Þá hefur umboðsmaður barna mætt á Þingeyri og haft afskipti af málinu.

Kristján segir deilurnar hafa byrjað eftir að faðir barnanna hafi logið því að hann væri að svíkja út bætur. Kristján hefur ávallt neitað því að hafa ráðist á móður barnanna.

„Þetta fólk hefur verið á móti mér í mörg ár og ég veit ekki af hverju. Þau hafa kallað mig ljótum nöfnum opinberlega og hafa reynt að ljúga ýmsu upp á mig, til að mynda reyndi hann að fá mig rekinn úr öðru starfi sem hafnarvörður með lygum. Þetta játaði hann fyrir dómi,“ segir Kristján sem er hættur sem baðvörður.

„Ég fæ annað starf hjá bænum. Bæjarstjórinn komst að þeirri niðurstöðu að það væri betra að ég væri ekki lengur í þessu starfi. Ég hef alltaf gert það sem bærinn biður mig um í þessu máli,“ segir Kristján.

Að sögn Kristjáns hefur málið hafi tekið mikið á hann og fjölskyldu hans. Hann er tveggja barna faðir.

„Þetta hefur verið alveg ömurlegt en ég fæ ekkert að verja mig á meðan þessi lögreglustjóri er við völd,“ segir Kristján.

Skólastjórinn í grunnskólanum á Þingeyri vildi ekki tjá sig um málið en tók fram að hún reyndi alltaf að bera hag barnanna fyrir brjósti. Foreldrar barnanna vildu ekki tjá sig um málið að svo stöddu.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu

Í nokkur ár hafa staðið miklar deilur milli tveggja fjölskyldna á Þingeyri.vísir/pjetur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×