Fjölskyldudeilur héldu börnum frá skólasundi Nadine Guðrún Yaghi skrifar 8. ágúst 2016 07:00 Í nokkur ár hafa staðið miklar deilur milli tveggja fjölskyldna á Þingeyri. vísir/pjetur
Tvö börn á Þingeyri mættu hvorki í leikfimi né skólasund í heilt ár vegna baðvarðar grunnskólans í bænum. Miklar deilur hafa staðið milli foreldra barnanna og fjölskyldu baðvarðarins sem heitir Kristján Þ. Ástvaldsson. Kristján var kærður árið 2014 fyrir líkamsárás á móður barnanna en var sýknaður í héraðsdómi og í Hæstarétti. Í dóminum segir að lögreglustjórinn hafi ekki náð að sanna sekt Kristjáns. Deilurnar hófust eftir að faðir barnanna lét yfirvöld vita af meintum tryggingasvikum Kristjáns. Í kjölfarið héldu foreldrar barnanna því fram að Kristján hefði ráðist á móðurina. Þá hafa ýmsar ásakanir komið frá fjölskyldunum hvorrar í garð annarrar. Málið hefur farið víða en í dag er það á borði menntamálaráðuneytisins, umboðsmanns Alþingis og Ísafjarðarbæjar. Einnig hafa lögregluyfirvöld ítrekað haft afskipti af málinu. Þá hefur umboðsmaður barna mætt á Þingeyri og haft afskipti af málinu. Kristján segir deilurnar hafa byrjað eftir að faðir barnanna hafi logið því að hann væri að svíkja út bætur. Kristján hefur ávallt neitað því að hafa ráðist á móður barnanna. „Þetta fólk hefur verið á móti mér í mörg ár og ég veit ekki af hverju. Þau hafa kallað mig ljótum nöfnum opinberlega og hafa reynt að ljúga ýmsu upp á mig, til að mynda reyndi hann að fá mig rekinn úr öðru starfi sem hafnarvörður með lygum. Þetta játaði hann fyrir dómi,“ segir Kristján sem er hættur sem baðvörður. „Ég fæ annað starf hjá bænum. Bæjarstjórinn komst að þeirri niðurstöðu að það væri betra að ég væri ekki lengur í þessu starfi. Ég hef alltaf gert það sem bærinn biður mig um í þessu máli,“ segir Kristján. Að sögn Kristjáns hefur málið hafi tekið mikið á hann og fjölskyldu hans. Hann er tveggja barna faðir. „Þetta hefur verið alveg ömurlegt en ég fæ ekkert að verja mig á meðan þessi lögreglustjóri er við völd,“ segir Kristján. Skólastjórinn í grunnskólanum á Þingeyri vildi ekki tjá sig um málið en tók fram að hún reyndi alltaf að bera hag barnanna fyrir brjósti. Foreldrar barnanna vildu ekki tjá sig um málið að svo stöddu.Greinin birtist fyrst í FréttablaðinuÍ nokkur ár hafa staðið miklar deilur milli tveggja fjölskyldna á Þingeyri.vísir/pjetur
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Sjá meira