Hugsar til langömmu um leið og hún syngur 30. júlí 2016 10:15 Það er létt yfir flytjendunum, Ágústi, Jóni og Sigríði Ósk, við harmoníumorgelið. Fréttablaðið/Eyþór
Við Ágúst syngjum bæði saman og hvort í sínu lagi og dagskráin er valin þannig að hæfi vel þessari virtu sveitakirkju og harmoníumorgelinu en það nafn er notað yfir fótstigið orgel. Tónlistin er trúarleg, veraldleg og þjóðleg,“ segir Sigríður Ósk Kristjánsdóttir sem syngur í Strandarkirkju í Selvogi á morgun ásamt Ágústi Ólafssyni og Jón Bjarnason, organisti Skálholtskirkju, er við hljóðfærið. Sigríður Ósk nefnir Nú vil eg enn í nafni þínu og Almáttugur Guð allra stétta sem dæmi um þjóðlega sálma sem sungnir verða, einnig Maríubænir eftir mismunandi tónskáld. „Ég syng Ave Maríur eftir Bach og Pál Ísólfsson og Ágúst syngur Ave Maríu eftir finnska tónskáldið Oskar Merikanto sem er svona Sigvaldi Kaldalóns þeirra Finna. Ágúst lærði í Sibeliusarakademíunni í Finnlandi og syngur á finnsku. Svo erum við líka með erlend þjóðlög og íslenskar sönglagaperlur. Ég held þetta verði voða fallegt og ég mun hugsa til hennar Grímheiðar Elínar langömmu minnar, sem gerðist organisti í Strandarkirkju þegar hún var ung stúlka.“ Ég bið Sigríði Ósk að fræða mig meira um hana Grímheiði og fæ sögu. „Hún var fædd 1895 og ólst upp á Eyrarbakka sem var mikið menningarþorp á þeim tíma. Þar lærði hún nótnalestur og að spila á orgel. Móðir hennar dó af barnsförum árið 1900 frá fimm börnum og eftir að pabbi hennar giftist aftur og eignaðist fjögur börn í viðbót flutti hann með allan hópinn að Nesi í Selvogi. Þar gerðist langamma organisti í kirkjunni 1915. Systkini hennar urðu aðaluppistaðan í kórnum og hún æfði þau á kvöldin en svo giftist hún og flutti í bæinn 1919.“ Tónleikarnir í Strandarkirkju á morgun nefnast Stóðum tvö í túni og eru þeir síðustu þetta sumarið í tónleikaröðinni Englar og menn í Strandarkirkju sem Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona heldur utan um. Þeir hefjast klukkan 14. Aðgangseyrir er 2.000 krónur og enginn posi er á staðnum. Hægt er að kaupa sér kaffi af heimafólki eftir tónleikana.
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira