Hinn gleymdi Enski sjúklingur Stefán Þór Hjartarson skrifar 28. júlí 2016 09:45 Ralph Fiennes í hlutverki sínu sem enski sjúklingurinn, sem reynist svo ungverskur kortagerðamaður.
Fyrir 20 árum, árið 1996, var kvikmyndin The English Patient sýnd fyrst í kvikmyndahúsum og fór í kjölfarið sigurför um heiminn – fékk hvorki meira né minna en tólf tilnefningar til Óskarsverðlaunanna og vann níu af þeim – þar á meðal var Enski sjúklingurinn valin besta myndin, leikstjórinn Anthony Minghella var valinn besti leikstjórinn og Juliette Binoche var valin besta leikkonan í aukahlutverki. Myndin var unnin upp úr samnefndri skáldsögu eftir Michael Ondaatje en bæði skáldsagan og kvikmyndin eru að mestu fallin í gleymskunnar dá í dag þrátt fyrir að hafa verið gríðarlega vinsæl á sínum tíma. Myndin gerist í síðari heimsstyrjöldinni, en það sögusvið hefur lengi loðað við Óskarstilnefndar myndir, og segir söguna af hjúkrunarkonunni Hana, leikinni af Juliette Binoche sem eins og áður sagði hlaut Óskarinn fyrir túlkun sína, sem fær upp í hendurnar mjög illa brunninn sjúkling – en hann, eins og titill myndarinnar spillir fyrir áhorfandanum (eða hvað?), talar ensku en er með heldur gloppótt minni. Sjúklingurinn er leikinn af sjálfum hjartaknúsaranum Ralph Fiennes, sem var tilnefndur til Óskarsins fyrir leik sinn en tapaði honum í hendurnar á Geoffrey Rush. Raunar fjallar myndin að mestu leyti um endurminningar sjúklingsins sem hann endurheimtir í gegnum myndina. Hann reynist í raun ungverskur kortagerðamaður og greifi en bara alls ekki enskur og er farið í gegnum allar þær sorglegu þrekraunir sem hann hefur þurft að ganga í gegnum, meðal annars að hafast við í helli í Túnis, áður en örlögin verða þess valdandi að hann er eins og brunarúst staddur þarna inni á sjúkrahúsi hjá henni Hönu. Í nútímanum er stundum erfitt að átta sig á vinsældum fyrirbæra úr fortíðinni, að minnsta kosti fyrir þá sem ekki voru uppi á þeim tímum er vinsældirnar voru í hámarki. Í tilviki Enska sjúklingsins er kannski auðveldast að horfa á Seinfeld-þáttinn The English Patient til að fá ákveðna hugmynd um hvernig þessi mynd smaug inn í poppkúltúr tíunda áratugarins. Í þættinum fer Elaine í stefnumót í bíó og endar með að sjá The English Patient. Allir í kringum hana elska myndina og tala ekki um annað en hún er hins vegar mjög opin með það hversu ömurleg henni fannst ræman. Þetta veldur því að Elaine getur ekki tengt við fólkið í kringum sig vegna þess hve vinsæl myndin er og hversu mikið allir dýrka hana. J. Peterman, hinn sérvitri yfirmaður Elaine (sem er byggður á alvöru persónu, eins og flestir í þáttunum), endar með að reka Elaine vegna óbeitar hennar á myndinni – en hún fær starfið sitt aftur eftir að hafa samþykkt að búa í helli í Túnis, eins og sjúklingurinn í myndinni neyðist til að gera. Það er erfitt að segja til um af hverju The English Patient er ekki enn jafn vinsæl og aðrar stórmyndir sem voru gefnar út árið 1996 – en á það ár komu út myndir eins og Trainspotting og Independence Day. Báðar hafa þessar kvikmyndir fengið framhald – Independence Day á þessu ári og Trainspotting fær sitt framhald snemma á því næsta. The English Patient fékk líklega betri dóma en báðar þessar myndir. Kannski er bara best að leita skýringa í orðum Elaine þegar hún var spurð hvernig í ósköpunum hún færi að því að elska ekki Enska sjúklinginn: „How about, it sucked?“
Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Fleiri fréttir Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Sjá meira