Lífið

Buslað í Bankastræti

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Það var mikið líf og fjör í miðbænum í dag.
Það var mikið líf og fjör í miðbænum í dag. Vísir/Hanna
Það varð margur blautur í Bankastrætinu í dag en þar var sett upp svokölluð Slip ´N´Slide vatnsrennibraut. Brautin náði marga metra niður strætið en efst var tjald þar sem hægt var að skipta yfir í baðfötin. Brautin var opin á milli 12 og 18 í dag.

Þetta gekk alveg ljómandi vel,“ sagði Geir Finnsson einn umsjónarmanna brautarinnar. „Þó það hafi ekki verið bongó-blíða þá myndaðist alveg rosalega löng röð lengst upp að Dunkin Donuts. Það var fólk á öllum aldri sem renndi sér niður Bankastræti.“

Þessari ungu hnátu leiddist ekki á rúntinum niður Bankastrætið í dag.Vísir/Hanna
Brautin var þriggja metra breið og var volgt vatn látið renna niður hana. Sundlaug og öryggishlið voru neðst á brautinni til þess að taka á móti þeim sem komu niður á fljúgandi ferð.



Það voru fyrirtækin Nova og Samsung sem stóðu fyrir uppátækinu með góðfúslegu leyfi Reykjavíkurborgar.

Stöð 2 fjallaði um viðburðinn í kvöldfréttatíma sínum. Myndbandsupptökur af fjörinu má því sjá í fréttinni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.