Vikið úr MK fyrir myndir og hnífaburð Nadine Guðrún Yaghi skrifar 4. júlí 2016 07:00 Menntaskólinn í Kópavogi. vísir/heiða
Umboðsmaður Alþingis hefur til skoðunar mál sautján ára drengs sem vikið var fyrirvaralaust úr Menntaskólanum í Kópavogi á síðasta ári fyrir óviðeigandi myndbirtingar á netinu af skólasystur sinni og fyrir hnífaburð í skólanum. Öðrum dreng á svipuðum aldri var einnig vísað úr skólanum á sama tíma í fyrra fyrir myndbirtingar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er um að ræða myndskeið og myndir sem birtar voru á lokuðum Facebook-hóp drengja í skólanum, MK bræður. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu bárust snemma á síðasta ári tvær kærur þar sem kærðar voru ákvarðanir skólameistara Menntaskólans í Kópavogi um að vísa drengjunum fyrirvaralaust úr skólanum. Gerðar voru þær kröfur að ákvarðanir skólameistarans yrðu felldar úr gildi. Ráðuneytið staðfesti með úrskurði í desember síðastliðnum rétt skólameistarans til að vísa drengjunum úr skólanum. Lögfræðingur foreldra annars drengsins kvartaði í kjölfarið til Umboðsmanns Alþingis sem hefur málið nú til skoðunar. Heimildir Fréttablaðsins herma að þar sé meðal annars til skoðunar hvort ráðuneytið hafi fylgt eftir lagaskyldu sinni við að tryggja að barn fái skólavist í framhaldsskóla. Einnig er verið að kanna hvort gætt hafi verið meðalhófs þegar ákvörðun um brottrekstur var tekin. Drengurinn fékk þó inngöngu í annan menntaskóla síðasta haust eða nokkrum mánuðum eftir atvikin. Mál drengjanna voru kærð til lögreglu og send á ákærusvið en ekki fengust upplýsingar frá embættinu um hvort málin hafi verið felld niður eða ekki. Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi, sagðist ekki geta tjáð sig um mál einstakra nemenda. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 4. júlí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir „Það þarf ekki nema einn sígarettustubb til þess að kveikja í öllu“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira