Bókmenntirnar hoppa og skoppa með boltanum Jakob Bjarnar skrifar 5. júlí 2016 10:10 Framkvæmdastjóri Forlagsins á skrifstofu sinni. Sala á íslenskum útgáfuréttindum hefur snaraukist. visir/anton
Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, segir að áhugi erlendra útgáfufyrirtækja hafi snaraukist að undanförnu og ekki sé hægt að rekja þann áhuga til annars en velgengni íslenska karlalandsliðsins á EM.Útgáfuréttur á bókum Andra Snæs seldur„Þetta hefur verið athyglisvert síðustu vikurnar. Forsetaframboð Andra Snæs Magnasonar vakti mikla athygli á honum og við seldum útgáfurétt á verkum Andra Snæs í framhaldi af því. Og nú þetta; EM,“ segir Egill Örn. Nú er það ekkert endilega svo að menning og íþróttir sé eitthvað sem fólk tengir nema ef til vill í gegnum barna- og unglingabókahöfunda eins og Gunnar Helgason og Þorgrím Þráinsson. Og þá með ýmsum fyrirvörum. En, Egill vill meina að þarna séu tengsl. „Á undanförnum árum hefur bókamarkaður Félags útgefenda verið haldinn á Laugardalsvelli, og því nánast um bein tengsl að ræða milli KSÍ og bókaútgefenda,“ segir Egill Örn og glottir.Áhuginn vaxandi um heim allan En, að öllu gamni slepptu, hann bendir á að nú hafi erlendir útgefendur haft samband að fyrra bragði. „Og leita að útgáfuverkum frá Íslandi. Hér hefur rignt yfir okkur hamingjuóskum úr öllum heimshornum og fyrirspurnum um verk einstakakra höfunda og líklegra en ekki að úr því komi nokkur fjöldi útgáfusamninga á erlendri grundu. Áhuginn einskorðast ekki einungis við Evrópu og Bandaríkin því útgefendur, meðal annars í Kóreu og Tævan, hafa sett sig í samband við okkur, óskað til hamingju og sýnt áhuga á að gefa út verk íslenskra höfunda í heimalöndum sínum.Þýðendur beðnir um að finna verk „Þýðendur hafa sett sig í samband við okkur en þeir hafa fundið fyrir auknum áhuga á því að láta þýða íslenskar bækur. Tveir þýðendur Evrópskir látið okkur vita af því að útgefendur hafi haft við sig samband og beðið um að finna fyrir sig verk til útgáfu.“ Vert er að hafa í huga að um þetta munar, sala á íslenskum útgáfuréttindum hefur á undanförnum 2 til 3 árum numið vel á annan milljarð króna, þá sem höfundar hafa skapað í skattskyldum gjaldeyristekjum fyrir þjóðarbúið. Nú sjá menn fram á verulega aukningu í þeim efnum.
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Innlent Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Innlent Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Erlent Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Erlent Fleiri fréttir Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Sjá meira