Gróðurofnæmi nær nú hámarki fyrr en áður Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 6. júlí 2016 07:00 Garðsláttur og gola er skelfileg blanda fyrir ofnæmissjúklinga. NordicPhotos/Getty
Yfirleitt er gróðurofnæmi verst á tímabilinu 10. júlí til 10. ágúst. Þá er grasfrjó svífandi um loftin en langflestir þeirra sem eru með gróðurofnæmi eru með ofnæmi fyrir grasfrjói. Vegna góðra veðurskilyrða er ofnæmistímabilið þó fyrr á ferðinni þetta árið og Davíð Gíslason ofnæmislæknir segir það ná hámarki á næstu dögum. „Verstu skilyrðin eru þegar öðrum finnst veðrið voða gott. Það kemur mest frjómagn í loftið þegar það hefur rignt og svo þornar upp með sól og smá golu. Sérstaklega ef það er norð-austan átt,“ útskýrir Davíð með nákvæmum hætti. Margir velta fyrir sér af hverju ofnæmi hefur aukist svo mikið síðustu áratugi og Davíð staðfestir að það hafi greinilega orðið jöfn og stöðug aukning síðustu áratugi. Aftur á móti séu ekki til nýlega tölur um fjölda ofnæmissjúklinga og erfitt sé að staðhæfa um hvað valdi aukningunni. Það tengist þó nútímalífsháttum. „Ofnæmi er almennt meira í smáum fjölskyldum en stórum. Það er meira ef fólk hefur rúmt um sig heldur en ef það býr þétt þar sem er lítið rými. Vafalaust hefur bílamengun sitt að segja, þá kannski frekar mengun frá díselbílum.“ Davíð segir einkenni ofnæmis vera auðþekkjanleg. Þau eru kláði í nefi og nefrennsli og það sem er mest einkennandi er kláði í augum. Ef fólk meðhöndlar ekki ofnæmið getur það fengið astmaeinkenni þegar líður á sumarið. Davíð segir nauðsynlegt að vera á lyfjum yfir allt sumarið og þannig ættu allir að geta notið þess að vera úti við. „Best er að taka ofnæmislyf á hverjum degi allt sumarið og jafnvel bæta við sterapústi yfir versta tímann auk augndropa. Ef fólk fer í útilegur er best að tjalda þar sem búið er að slá grasið, og það helst fyrir nokkrum dögum. Eða við vatnsbakka.“
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira