Sýknaður af ákæru um að hafa tekið upp kynlífsmyndband án vitundar kærustu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. júlí 2016 14:43 Fjölskipaður Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað karlmann af ákæru um að hafa án vitundar þáverandi kærustu sinnar tekið upp myndband af þeim í kynlífsathöfnum í lok sumars 2014. Vísir/Getty
Fjölskipaður Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað karlmann af ákæru um að hafa án vitundar þáverandi kærustu sinnar tekið upp myndband af þeim í kynlífsathöfnum í lok sumars 2014. Konan bar því við að hafa fundið tuttugu mínútna myndskeið í tölvu mannsins þar sem hún sást meðal annars veita honum munnmök. Myndskeiðið fannst hins vegar ekki við leit í tölvunni en konan sagðist hafa eytt því þegar hún fann það óvænt í tölvunni. Samband mannsins og konunnar stóð stutt yfir, eða aðeins í nokkrar vikur. Konan lagði fram kæru hjá lögreglu 12. september og sagðist sex dögum fyrr hafa fundið myndbandið í tölvu mannsins. Ákærði neitaði sök og sagði ástæðu ákærunnar þá að hann hefði hætt með konunni. Hann hefði aldrei tekið upp nein myndskeið af kynlífsathöfnum með hennar samþykki. Húsleit fór fram á heimili ákærða í þeim tilgangi að haldleggja síma- og tölvubúnað. Ekki fundust nothæfar upptökur í tölvunni um meint kynferðisbrot. Þar fundust þó smámyndi (e. thumbnails) sem virtust sýna fólk í ástaratlotum. Konan sagði myndirnar vera af þeim tveimur í atlotum. Maðurinn neitaði alfarið að hafa tekið upp myndskeið og auk þess hefðu allir aðgang að tölvunni. Hann hefði ekkert þar að fela. Önnur smámyndanna væri af öðrum manni en hin af honum þar sem hann lá upp í sófa með dóttur sinni. Ítarleg rannsókn á tölvu mannsins leiddi í ljós að fjölmargar myndbandsupptökur fundust sem áttu sér stað árið 21 ágúst sem hægt hafi verið að skoða. Hafi þær sýnt kynferðislegt athæfi en verið mjög stuttar. Síðasta upptakan hafi verið tekin upp þann 21. ágúst og staðið í rúmar tuttugu mínútur. Hins vegar hafi ekki verið hægt að sjá hvaða efni hafi verið af henni. Lengd upptökunnar og tímasetning voru í samræmi við orð brotaþola en engin leið var að sjá hvað hafði verið á upptökunni. Dómurinn mat framburð ákærða og brotaþola trúverðugan. Hins vegar væri verulegur vafi á tilvist og efni meinta myndskeiðsins og hefði ákæruvaldinu ekki tekist að sanna sekt ákærða. Var hann því sýknaður af ákærunni.Dóminn má sjá hér.
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Innlent Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Erlent Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Erlent Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Erlent Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Erlent Fleiri fréttir Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Sjá meira