Erum fyrst og fremst að gleðjast saman Viktoría Hermannsdóttir skrifar 9. júlí 2016 10:00 Feðginin Jóhanna Engilráð og Hrafn með taflmenn í stærra lagi sem tilheyra taflborðinu bakvið þau. Fréttablaðið/Eyþór „
Við erum að fagna góðum árangri að undanförnu og leggja drög að næstu verkefnum. Við erum fyrst og fremst að gleðjast, koma saman og bjóða alla velkomna að koma að kynna sér starfs Hróksins á Íslandi og í Grænlandi,“ segir Hrafn Jökulsson, forseti skákfélagsins Hróksins. Hrókurinn býður til uppskeruhátíðar í dag. Þar verður tafl og tónlist, bókamarkaður, myndasýning frá Grænlandi og vöfflur á boðstólum. Linda Guðmundsdóttir frá Finnbogastöðum í Trékyllisvík mun leika á harmóníku, Valdimar Tómasson mun stýra bókamarkaði og skákmeistarar tefla við gesti og gangandi Frá árinu 2003 hafa Hróksliðar farið í yfir 50 ferðir til Grænlands að útbreiða skák og vináttu. Þeir hafa einnig staðið fyrir fatasöfnun fyrir grænlensk börn og unglinga auk þess sem nýlega var farið að safna fötum fyrir heimilislausa í Nuuk. „Það var nýlega stofnað athvarf fyrir heimilislausa í Nuuk sem Íslendingurinn Guðmundur Þorsteinsson veitir forstöðu. Við heimsóttum það í maí og eignuðumst þar góða vini. Við sendum fyrstu sendinguna þangað í gær.“ Það er nóg um að vera hjá Hróknum og á hátíðinni verða komandi verkefni einnig kynnt. „Það er mikið fram undan af skákhátíðum og skemmtilegheitum víða á Grænlandi enda flýgur Flugfélag Íslands núna til fimm staða á Grænlandi. Flugfélagið hefur staðið við bakið á okkur frá upphafi,“ segir Hrafn. „Svo erum við líka bara að fagna þessum góða árangri og fara yfir verkefnin okkar hér heima. Verkefnin eru öll í anda slagorðs Hróksins og skákhreyfingarinnar: Við erum ein fjölskylda.“ Uppskeruhátíðin fer fram milli klukkan 14 og 16 í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu 11 í dag.
Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Lífið Fleiri fréttir Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Sjá meira