5000 inneignarkort á veitingastað ónothæf Nadine Guðrún Yaghi skrifar 27. júní 2016 05:00 Aha.is var búið að greiða Lifandi markaði klippikortin upp að stærstum hluta og tapaði því á viðskiptunum.
Veitingastaðnum Lifandi markaði var lokað á dögunum en um 5.000 inneignarkort fyrir tíu drykkjum á staðnum höfðu verið seld nokkru áður á vefsíðunni Aha.is. Inneignarkortið kostaði 4.990 krónur og fjölmargir höfðu ekki notað kortið þegar staðnum var lokað. „Það eru nokkur fyrirtæki sem við höfum átt viðskipti við sem hafa farið á hausinn. Við bregðumst alltaf við með það að leiðarljósi hvað sé best fyrir neytendur,“ segir Helgi Már Þórðarson, eigandi Aha.is, en fyrirtækið mun gefa öllum þeim, sem geta ekki nýtt inneignarkortið, inneign hjá Aha.is. „Við töpum á þessu já, en til langs tíma litið verða viðskiptavinir okkar ánægðir og við fáum fleiri viðskiptavini. Við værum aldrei orðin fimm ára gömul hefðum við ekki gert þetta frá byrjun.“ Aha.is var búið að greiða Lifandi markaði fyrir kortin að stærstum hluta. „En ekki alveg allt. Venjulega fá fyrirtæki jafnóðum greiðslur frá okkur en þegar um er að ræða svona klippikort þá sláum við varnagla við og greiðum ekki allt að fullu stax,“ segir Helgi og bætir við að eigandi Lifandi markaðar hafi komið heiðarlega fram þegar hann sá í hvað stefndi. Helgi segir fyrirtækið hafa aðgang að Creditinfo og geti þannig skoðað sögu fyrirtækja sem á að fara í samstarf við. Í þessu tilfelli hafi sagan þó ekki verið skoðuð enda hafi þau treyst fyrirtækinu og haldið að það væri stöðugt. Í svari frá Neytendastofu vegna málsins kemur fram að þegar klippikortið hafi verið sótt sé samningssambandi neytandans og Aha.is í raun lokið, svo neytandinn á ekki lögbundna kröfu á Aha.is vegna þessa. Því gangi Aha.is lengra en lögbundin skylda fyrirtækisins kveði á um og sé því í rétti til að veita inneign í stað endurgreiðslu. Þá segir að engin opinber stofnun hafi eftirlit með því hvernig farið er með kröfur neytenda þegar fyrirtæki fara í þrot eða loka og vanefna þar með samningsskyldu sína gagnvart neytandanum. Neytendastofa hafi ekki tekið ákvörðun í máli þar sem komi til álita hvort þetta teldust óréttmætir viðskiptahættir og því geti stofnunin ekki svarað því á þessu stigi.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 27. júní
Mest lesið Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent Kom ekki á teppið Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Erlent Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Innlent Fleiri fréttir Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar Sjá meira