Undirbúa málsókn vegna losunar hafta Sveinn Arnarsson skrifar 28. júní 2016 07:00 Útboð SÍ þann 16. júní gekk vel og losnaði um 70 af 300 milljörðum aflandskróna.
Bandarískir vogunarsjóðir undirbúa nú málsókn á hendur íslenska ríkinu vegna laga um aflandskrónaúboð. Þeir vilja láta reyna á hvort lögin standist stjórnarskrá og hafa farið fram á við héraðsdóm að dómkvaddir verði tveir óvilhallir matsmenn til að meta lögmæti laganna. Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrsti varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar, telur þessar hugmyndir þvælu. Fyrr í mánuðinum hélt Seðlabanki Íslands aflandskrónaútboð þar sem eigendum var boðið að losa sig út á ákveðnum kjörum. Gátu þeir keypt evrur fyrir um 190 krónur á hagstæðasta verðinu en gengi evru í dag er undir 140 krónum. Með útboðinu náði Seðlabankinn inn rúmum sjötíu milljörðum króna og greiddi fyrir þær andvirði tæpra fimmtíu milljarða. „Ég hef engar áhyggjur af þessum vangaveltum,“ segir Brynjar. „Þeir eru hvort heldur sem er búnir að vera í höftum og fengu að fara út með vextina sína sem Íslendingar hafa ekki fengið. Ef þetta er ólöglegt þá hafa höftin verið ólögleg allan tímann.“ Málshöfðunin sé einhver þvæla. „Það er ekki gengið lengra en nauðsyn krefur, fyrir lögunum eru málefnaleg sjónarmið, meðalhóf virt og þetta er liður í losun hafta.“Símhleranir málfundur Sigurður Tómas Magnússon Stefán Eiríksson Valtýr Sigurðsson Brynjar NíelssonPétur Örn Sverrisson, lögmaður vogunarsjóðanna, segir umbjóðendur sína telja aðgerðir stjórnvalda harkalegar, þær gangi gegn eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og séu í reynd eignaupptaka. „Við höfum komið á framfæri hugmyndum um sanngjarnari leið sem myndi ná sömu markmiðum stjórnvalda. Ekki hefur verið hlustað á þær hugmyndir. Við áréttum að engum hefur verið stefnt enn þá en það er fyrsta skrefið hjá okkur að fá dómkvadda matsmenn að borðinu áður en lengra er haldið,“ segir Pétur. Hann telur einnig að málið muni ekki hafa áhrif á áætlun stjórnvalda um afnám hafta. Brynjar segir málaferli hins vegar geta sett strik í reikninginn. „Það gæti alveg tafið ferlið eitthvað. Nú, ef þeir ynnu mál í framhaldinu þá verður höftum bara ekkert aflétt, það er bara þannig.“
Mest lesið Þingmaður úðaði eyrnameðali fyrir hunda í kokið á sér Innlent „Það eru alltaf einhverjar árásir í þessari blokk“ Innlent Sérsveit handtók vopnaðan mann Innlent Þorbjörg segir Úlfar hengja bakara fyrir smið Innlent Sósíalistar tortími mögulega sjálfum sér Innlent Kviknaði í bíl á miðjum vegi Innlent Kveður Glerártorg eftir sautján ár Innlent Umfangsmestu loftárásir frá upphafi stríðs Erlent Framtíð vararíkissaksóknara ræðst á allra næstu dögum Innlent Úr Kvennaskólanum í píparann Innlent Fleiri fréttir „Það eru alltaf einhverjar árásir í þessari blokk“ Stefnt að nýjum og glæsilegum miðbæ í Grundarfirði Kviknaði í bíl á miðjum vegi Framtíð vararíkissaksóknara ræðst á allra næstu dögum Þorbjörg segir Úlfar hengja bakara fyrir smið Sósíalistar tortími mögulega sjálfum sér Dómsmálaráðherra tjáir sig um ummæli Úlfars Úr Kvennaskólanum í píparann Afsögn Úlfars og afstaða Íslands til ástandsins á Gasa Sérsveit handtók vopnaðan mann Tóku á móti tveimur börnum á innan við klukkustund Steinn reistur við með eins konar blöðrum Elsti hestur landsins er 36 vetra með tennur og hófa í fínu standi Vannærð börn svelti eða verði læknanlegum sjúkdómum að bráð „Þú hakkar ekki á tóman maga“ Kveður Glerártorg eftir sautján ár Þingmaður úðaði eyrnameðali fyrir hunda í kokið á sér „Hafa ekki lyft litla fingri í máli Oscars“ Dúxinn fjarri góðu gamni Brottvísun Oscars, skortur á kvenhökkurum og hundgamall hestur Vísar ásökunum um smölun aftur til sendanda Skjálftinn reyndist 5,1 og fannst frá Skaganum að Hellu Gunnar Smári kosinn úr stjórn: Úrsagnir og uppnám á aðalfundi Sósíalistaflokksins Skiptar skoðanir á „forljótum“ varðturnum gegn vasaþjófnaði Stór skjálfti fannst vel á suður- og vesturlandi Dráttarvéladagur er á Blikastöðum í dag Beiðni Oscars hafnað: „Það bíður hans engin birta, það er enginn þarna“ Nýr meirihluti komi ekki til greina Umsókn Oscars um landvistarleyfi hafnað og nýr meirihluti útilokaður Þrjár erlendar stúlkur með hæstu einkunn í FÁ Sjá meira