Lífið

Hörður spáði hárrétt fyrir um úrslit leiksins í gær í kvöldfréttunum

Birgir Olgeirsson skrifar
Hörður S. Óskarsson segist hafa fundið á sér að Íslendingar myndu klóra í eitt gott stig gegn Portúgal.
Hörður S. Óskarsson segist hafa fundið á sér að Íslendingar myndu klóra í eitt gott stig gegn Portúgal. Vísir/EPA
Íslendingar hefðu nánast geta sleppt því að horfa á leik Íslands og Portúgals á Evrópumóti karla í knattspyrnu í gærkvöldi því úrslitin lágu fyrir í kvöldfréttum Sjónvarpsins áður en flautað var til leiksloka. Fréttamaður Ríkisútvarpsins tók vegfarendur á tali á Ingólfstorgi og bað þá um að spá fyrir um úrslit leiks en þar steig Hörður nokkur Óskarsson ískaldur fram og spáði hárrétt fyrir um úrsliti leiksins, 1 – 1 jafntefli þar sem Nani skorar mark Portúgals og Birkir Bjarnason mark Íslands.

„Ég er ekki svo heilagur,“ segir Hörður í samtali við Vísi spurður hvort hann hafi fengið einhverskonar sýn fyrir leikinn. „Ég fann þetta bara á mér að Ísland myndi klóra sér í eitt gott stig og vissi ekki mikið meira en það.“

Hörður segist ekki vera svo séður að liggja yfir tölfræði fyrir leiki og sjá þannig fyrir úrslit þeirra.

„Ég er meira svona maður stundarinnar og reyni að bulla eitthvað. Mér datt þetta í hug að Cristiano Ronaldo myndi ekki skora þannig að Nani var fyrsta gisk eftir það.“

Hann segir athyglina eftir leikinn gríðarlega, flestir fjölmiðlar búnir að hringja í hann og ókunnugir senda honum skilaboð á Facebook í þeirri von um að geta fengið rétt úrslit í leik Íslands og Ungverjalands á laugardag.

En hvernig fer sá leikur?

„Ég segi 2 – 1 fyrir Íslandi,“ svarar Hörður. Spurður um markaskorara segir hann Gylfa Sigurðsson skora bæði mörk Íslands en Ungverjana þekkir hann ekki eins vel og lið Portúgals og spáir því að leikmaður númer 10 skori eina mark þeirra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×