Viðskiptavinir störðu á auða veggina Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. júní 2016 17:24 Þar sem áður héngu landsliðstreyjur er nú eitt Ginnungagap. Umrædd markmannstreyja húkir niðri í hægra horninu. Vísir/eyþór
Græn síðerma markmannspeysa í medium. Það er eina landsliðstreyjan sem eftir var hjá Jóa útherja þegar blaðamaður Vísis heyrði hljóðið í starfsmanni verslunarinnar fyrr í dag. Mikil ásókn hefur verið í allan varning tengdan íslenska landsliðinu eftir að það tryggði sæti sitt á Evrópumótinu í knattspyrnu. Verslanir hafa ekki farið varhluta af því og segir starfsmaður Jóa útherja, sem er sérhæfð knattspyrnuverslun, í samtali við Vísi að til marks um það má nefna að allir treflar sem búið er að klína íslenska fánanum á eru löngu uppseldir.Vísir hefur áður greint frá landsliðstreyjuæðinu sem gripið hefur landann. Erfitt er að meta það á þessu stigi hversu margar treyjur hafa selst að undanförnu en menn slá á að það séu um 15 þúsund treyjur. Treyjurnar kosta 12 þúsund krónur þannig að um verulega veltu er að ræða.Sjá einnig: Slegist um landsliðstreyjurnarÞað var því heldur tómlegt um að litast þegar ljósmyndari Vísis leit við í versluninni í dag. Ráðvilltir viðskiptavinir störðu á auða veggina og spurðust fyrir um væntanlegar sendingar. Fánar og húfur virðast þó ekki vera jafn vinsælt góss því það liggur þar enn í bunkum. „Það virðist enginn ganga um með húfur þarna í Frakklandi,“ sagði starfsmaðurinn í samtali við Vísi sem býst þó við að mesti kúfurinn sé nú að baki.
Tengdar fréttir Slegist um landsliðstreyjurnar Sannkallað treyjuæði ríkir á Íslandi. Gróft metið má ætla að um 30 þúsund manns ætli sér að klæðast íslenska landsliðsbúningnum næstu daga. 10. júní 2016 11:25 Mest lesið Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Bíó og sjónvarp Sonur Rögnu og Árna fæddur Lífið Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Lífið Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Bíó og sjónvarp Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lífið Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Sjá meira
Slegist um landsliðstreyjurnar Sannkallað treyjuæði ríkir á Íslandi. Gróft metið má ætla að um 30 þúsund manns ætli sér að klæðast íslenska landsliðsbúningnum næstu daga. 10. júní 2016 11:25