Á pari við bestu spítala Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 16. júní 2016 07:00 Fimmtíu ósæðarlokuaðgerðir eru gerðar árlega hér á landi. Í flestum tilvikum er lífræn loka úr kálfi eða svíni komið fyrir í stað þeirrar kölkuðu. Mynd/Lilja Jónsdóttir
Mjög góður árangur er af ósæðarlokuskiptum á Íslandi og eru lífshorfur þeirra sem gangast undir aðgerðina sambærilegar við Íslendinga af sama aldri og kyni sem ekki hafa þurft á slíkri aðgerð að halda. Þetta kemur fram í rannsókn sem er samvinnuverkefni lækna á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítalans, læknadeildar HÍ og Hjartaverndar.Úr ósæðarlokuskiptaaðgerð.Mynd/SindriÓsæðarlokuskipti eru önnur algengasta hjartaaðgerðin sem framkvæmd er á Vesturlöndum og eru árlega gerðar um fimmtíu slíkar aðgerðir hér á landi. Aðgerðin er umfangsmikil þar sem hjartað er stöðvað, kalkaða lokan fjarlægð og nýrri loku komið fyrir. Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir á skurðsviði Landspítalans og prófessor, stýrði rannsókninni en grein um hana birtist nýlega í Journal of Heart Valve Disease. „Niðurstaðan er að snemmkomuárangurinn hér á landi, það er lífshorfur sjúklings innan við þrjátíu daga frá aðgerð, er mjög góður og er á pari við það sem þekkist á bestu spítölum,“ segir Tómas. Rannsóknin náði til heillar þjóðar og var hægt að fylgja öllum sjúklingunum eftir, sem er sjaldgæft í sambærilegum rannsóknum erlendis. Það gerir rannsóknina sérstæða. „Við gátum borið saman þá sem fara í þessa aðgerð og aðra á sama aldri og af sama kyni. Rannsóknin leiddi í ljós mjög góðan langtímaárangur. Það kemur skemmtilega á óvart hversu lítill munur er á afdrifum þeirra sem fara í aðgerð og þeim sem ekki hafa þennan alvarlega hjartasjúkdóm.“Tómas Guðbjartsson stýrði rannsókninni en hún er hluti af doktorsverkefni Sindra A. Viktorssonar, læknis við læknadeild HÍ.Mynd/Kristinn IngvarssonStærstur hluti sjúklinganna er yfir sjötugt. Niðurstöðurnar eru því ekki síst ánægjulegar í ljósi þess að með auknum fjölda aldraðra muni þessum aðgerðum fjölga umtalsvert á næstu áratugum. „Gagnrýni hefur heyrst bæði utan og innan spítalans á að svo flóknar og dýrar aðgerðir séu gerðar á svo öldruðu fólki. En þessi góði árangur hvetur okkur til dáða og staðfestir að við erum að gera eitthvað rétt.“ Niðurstöðurnar Rannsóknin náði til 366 sjúklinga. 94% sjúklinganna lifðu aðgerðina. 82% sjúklinganna voru á lífi fimm árum frá aðgerð. Lífshorfur sjúklinga voru sambærilega við þá sem ekki höfðu hjartasjúkdóm.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 16. júní.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Sjá meira