Furðufiskurinn batti veiddist hér í annað sinn Svavar Hávarðsson skrifar 1. júní 2016 07:00 Batti hefur aðeins einu sinni veiðst við Ísland áður. Mynd/Hafró
Fyrir skömmu færði Eiríkur Ellertsson, sjómaður á Örfirisey RE, Hafrannsóknastofnun afar fáséðan og sérkennilegan fisk. Fiskurinn heitir batti (Dibranchus atlanticus) og veiddist í botnvörpu 6. maí á 695 metra dýpi við Reykjaneshrygg. Fiskurinn var 15,5 sentimetra langur. Tegundin hefur bara einu sinni áður veiðst við Ísland, svo vitað sé. Sá fiskur veiddist í júní 2007 í botnvörpu á 550-700 metra dýpi í Skaftárdjúpi og var 17 sentimetra langur. Fæða þessa djúpsjávarfisks er einkum burstaormar en hann étur einnig botnlægar marflær, samlokur, slöngustjörnur, krossfiska og fleiri hryggleysingja, segir í skriflegu svari frá Hafrannsóknastofnun. Í austanverðu Atlantshafi er batti undan Grænhöfðaeyjum, ströndum Gíneu og allt til Angóla. Þá hefur hann veiðst undan ströndum Portúgals og Frakklands og nokkrum sinnum djúpt undan norðausturströnd Írlands. Heimkynni batta í vestanverðu Atlantshafi eru frá ströndum Kanada, suður með Bandaríkjunum og inn í Mexíkóflóa, Karíbahaf og suður með ströndum Suður-Ameríku allt til Brasilíu. Batti er djúpsjávarbotnfiskur sem heldur sig á leir- og sandbotni við landgrunnsbrúnir, mest á 300-800 metra dýpi, en hefur veiðst á 45-1.300 metra dýpi. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júní
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira