Borgin vill fjölga í skólahljómsveitum Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 4. júní 2016 07:00 Biðlistar eftir plássi í skólahljómsveit eru óralangir. vísir/Anton brink „
Það er okkar stefna að fjölga plássum í skólahljómsveitum borgarinnar og við vonumst til að geta stigið skref í þá átt strax á næsta starfsári,“ segir Skúli Helgason borgarfulltrúi Samfylkingar og formaður skóla og frístundaráðs. Tæplega fjögur hundruð börn voru á biðlista eftir plássi í skólahljómsveit á síðasta ári. Í ár stefnir einnig í mikla umframaðsókn. Þar þarf þó að hafa í huga að biðlistarnir tengjast tilteknum hljóðfærum en öðrum ekki. Börnum innflytjenda fjölgar í hópi umsækjenda en eitt megin markmið skólahljómsveita er að jafna tækifæri barna til tónlistarnáms. „Við erum í þessum mánuði að hefja vinnu við að móta áherslur og stefnu fyrir fjárhagsáætlun næsta árs og munum taka þessi mál upp í því samhengi. Við erum einnig að vinna að því að greiða úr vanda tónlistarskóla í borginni og hyllir undir niðurstöðu í þau mál sem er mikilvægt til að geta snúið vörn í sókn í þeim málaflokki,“ segir Skúli og segir stefnu borgaryfirvalda skýra. „Við viljum auka aðgengi barna að tónlistarnámi og erum mjög ánægð með starf skólahljómsveitanna eins og tónlistarskólanna í borginni.,“ segir Skúli. Hann segir borgaryfirvöld einnig almennt vakandi fyrir þörfum barna frá ólíkum menningarsvæðum. „Við fylgjum metnaðarfullri fjölmenningarstefnu borgarinnar og viljum sannarlega sjá að fleiri börn af erlendum uppruna njóti þeirra lífsgæða sem felast í tónlistarnámi, rétt eins og önnur börn,“ segir Skúli. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 4. júní.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Innlent Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Innlent Fleiri fréttir Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Sjá meira