Engar forsendur til þess að rukka fyrir notkun rafrænna skilríkja sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 18. nóvember 2016 19:46 Neytendasamtökin telja að óverulegur kostnaður falli til hjá fjarskiptafyrirtækjum vegna notkunar neytenda á rafrænum skilríkjum. vísir/getty
Neytendasamtökin telja að óverulegur kostnaður falli til hjá fjarskiptafyrirtækjum vegna notkunar neytenda á rafrænum skilríkjum og að engar efnahagslegar forsendur séu til þess að láta neytendur greiða fyrir þá notkun. Samtökin hafa síðustu daga átt í viðræðum við bankastofnanir, fjarskiptafyrirtæki og fyrirtækið Auðkenni vegna gjaldtöku á rafrænum skilríkjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytendasamtökunum. Þar segir að notkun rafrænna skilríkja leiði til verulegs hagræðis hjá fjármálastofnunum, opinberum aðilum og fleiri fyrirtækjum, svo nemi gríðarlegum fjárhæðum, og að ekki komi til greina að rukka neytendur fyrir notkun þeirra. „Einhver kostnaður mun hafa fallið á fjarskiptafyrirtæki vegna útskiptingar SIM korta í tengslum við skuldaleiðréttingu ríkisstjórnarinnar á síðasta kjörtímabili en óvarlegt er að telja allan þann kostnað til rafrænna skilríkja þar sem hvort eð er hefði þurft að skipta út SIM kortum á lengri tíma,“ segir í tilkynningunni. Þá hafi Síminn tilkynnt að ekki standi til að hefja gjaldtöku vegna notkunar á rafrænum skilríkjum og að Vodafone hafi frestað gjaldtöku, sem fyrirhugað var að hefja um næstu mánaðamót. „Neytendasamtökin fagna þeirri ákvörðun og telja eðlilegt að fyrirtækið falli með öllu frá fyrirhugaðri gjaldtöku. Eftir stendur að Nova hefur um skeið innheimt gjald af viðskiptavinum sínum vegna notkunar rafrænna skilríkja og hyggst gera það áfram. Neytendasamtökin telja, sem áður segir, engar efnislegar forsendur vera fyrir þeirri gjaldtöku.“
Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Hitnar undir feldi Péturs Innlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Fleiri fréttir Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Sjá meira