Innlent

Drengir undir sakhæfisaldri grunaðir um íkveikju

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Frá vettvangi brunans.
Frá vettvangi brunans. vísir/vilhelm
Tveir unglingspiltar undir sakhæfisaldri eru grunaðir um íkveikju í tveimur blokkum á föstudaginn langa.

Skömmu fyrir klukkan tvö síðastliðinn föstudag var allt tiltækt slökkvilið kallað í Iðufell 4 og Gyðufell 10 eftir að kviknað hafði í anddyrum húsanna. Eldarnir kviknuðu með um tveggja mínútna millibili en greiðlega gekk að slökkva þá. Reykræsta þurfti bæði húsin.

Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri lögreglustöðvarinnar í Kópavogi, segir í samtali við fréttastofu að ekki sé vitað hvaða hvatir lágu að baki hjá drengjunum. Málið er í farvegi hjá lögreglunni og er það unnið í nánu samstarfi við foreldra drengjanna og barnaverndaryfirvöld.


Tengdar fréttir

Verulega brugðið vegna íkveikjunnar í Breiðholti

Íbúi til tuttugu ára í fjölbýlishúsi í Breiðholti, þar sem kveikt var í í gær, segist óttaslegin og brugðið vegna íkveikjunnar. Málið er enn óupplýst og brennuvarganna leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×