Romney segir Trump vera loddara Þórdís Valsdóttir skrifar 4. mars 2016 07:00 Mitt Romney hvetur félaga í Repúblikanaflokknum til að hafna framboði Donalds Trump. Nordicphotos/AFP
Fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, Mitt Romney, hefur hvatt flokksbræður sína til að hafna framboði Donalds Trump. Eins og er alkunna er Trump í baráttu um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins og miklar líkur eru á því að hann tryggi sér tilnefningu flokksins, ef fram heldur sem horfir. Romney sakar Trump um hafa bandarísku þjóðina að fífli og segir hann vera svikahrapp og loddara. Þetta kom fram í ræðu Romney á fundi í Utah-ríki í gær. Í ræðu sinni hvetur Romney samlanda sína til að taka réttar ákvarðanir og styðja ekki við bakið á Trump. Trump hefur svarað Romney á samfélagsmiðlinum Twitter og sagði meðal annars að Romney ætti ekki að veita öðrum ráðleggingar varðandi forsetaframboð í ljósi þess að hann hafi tapað kosningunum árið 2012 fyrir Barack Obama. Trump brást einnig við orðum Romneys í ræðu sem hann hélt í Maine. „Ég studdi Mitt Romney,“ sagði Trump í ræðunni. „Nú sjáið þið hversu trygglyndur hann er. Hann var að grátbiðja um stuðning minn.“ Romney telur að ef Trump hljóti tilnefningu flokksins muni það greiða veginn að forsetaembættinu fyrir Hillary Clinton. Þá segir hann einnig að Trump hafi hvorki rétta skapgerð né dómgreind til að gegna embætti forseta Bandaríkjanna. Mikill uggur er innan Repúblikanaflokksins vegna framgangs Trumps í forvali flokksins og hafa leiðtogar hans keppst við að reyna að hægja á Trump auk þess sem fjölmargir flokksfélagar hafa talað gegn stefnu Trumps að undanförnu. Trump varð hlutskarpastur repúblikana á Ofurþriðjudeginum svokallaða en þar hafði hann sigur í sjö ríkjum Bandaríkjanna í forvali flokksins.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira